138. löggjafarþing — 104. fundur,  13. apr. 2010.

rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna 2008 og tengdra atburða, skýrsla nefndar skv. lögum nr. 142/2008.

[16:50]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það er nú gott að hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson er farinn að fletta upp í skjalasafninu sínu. Þá hefði hann kannski fundið grein eftir undirritaða sem birtist í Morgunblaðinu þetta sama ár undir yfirskriftinni „90% lán Framsóknar“, þar sem ég lýsti skoðunum mínum á þeim. Hann hefur kannski ekki flett alveg nógu langt, þingmaðurinn.