þakkir til Vegagerðarinnar og stuðningur við sveitarstjórnir.
Frú forseti. Ég held að það skipti geysilega miklu máli þegar við erum að fást við svona hamfarir að ríkisstjórnin vinni vel saman. Þetta er nefnilega ekki málefni einhvers eins ráðuneytis, þetta er ekki bara eitthvað sem dómsmálaráðherra á að sinna heldur fellur þetta líka undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, undir heilbrigðisráðuneytið. Við erum búin að koma með nokkra punkta varðandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og eins og hæstv. fjármálaráðherra benti á kemur þetta líka inn á borð fjármálaráðherra því að einhver þarf að borga þann kostnað sem til fellur vegna hamfaranna. Það skiptir því geysilega miklu máli að allir ráðherrarnir vinni vel saman við að takast á við þessar miklu hamfarir.
Ég vil spyrja í lokin hvort hæstv. ráðherra hafi einhverjar upplýsingar um hugsanlegar tafir sem verða á framkvæmdum varðandi fjarskipti austur úr og líka hvaða áhrif gosið hefur á Landeyjahöfnina og framkvæmdir við hana.