138. löggjafarþing — 108. fundur,  20. apr. 2010.

bætur til bænda og björgunarsveita.

[14:29]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Varðandi það fyrsta sem hv. þingmaður nefndi tel ég það auðvitað sjálfsagt mál að Alþingi og viðkomandi þingnefndir fái aðgang að öllum upplýsingum varðandi málið og að þeirri vinnu sem í gangi er. Það er að sjálfsögðu eðlilegt að viðkomandi nefndir þingsins setji sig inn í málin ekki síður en aðrir. Ég hef enga trú á öðru en því verði vel tekið og það verði greiðlega orðið við því að miðla upplýsingum inn á þennan vettvang eins og annað.

Til að byrja með verður staðið þannig að upplýsingamiðlun til íbúanna að þjónustumiðstöðvar verða nú settar upp á tveimur stöðum. Það er gert ekki síst til að koma skipulega á framfæri upplýsingum og stuðningi við íbúana meðan þetta ástand varir. Hvernig þessu verður komið í varanlegra fyrirkomulag, verður ákveðið í framhaldinu.

Sama gildir um að menn hafi greiðan aðgang að upplýsingum um þau úrræði sem í boði eru eins og bætur frá Bjargráðasjóði og viðlagatryggingu. Fyrst um sinn skiptir miklu máli að skipulega sé haldið utan um skráningu og mat á tjóni sem orðið hefur og upplýsinga aflað á meðan ummerkin eru fersk.

Varðandi hlut björgunarsveitanna, sem er og hefur verið mjög mikilvægur, verður þeim veittur stuðningur vegna þeirra mikilvæga framlags. Það er þegar búið að ákveða það vegna þess mikla álags sem var á björgunarsveitum, sérstaklega á þessu svæði á tíma eldgossins á Fimmvörðuhálsi og ég geri ráð fyrir að það sama gildi um atburðina nú eftir að gosið hófst í Eyjafjallajökli og þá miklu aðstoð sem björgunarsveitirnar veita í þessu kerfi okkar eins og það er uppbyggt. Það er auðvitað ómetanlegt að eiga þær að þegar svona aðstæður ganga í garð.