138. löggjafarþing — 108. fundur,  20. apr. 2010.

bætur til bænda og björgunarsveita.

[14:32]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Ég fagna því að upplýsingamiðlun til íbúa verði öflug. Því miður, má segja, höfum við reynslu af svona hamförum, t.d. Suðurlandsskjálftunum sem voru ekki alls fyrir löngu, og þá var einmitt góð reynsla af því og almenn ánægja með hvernig þjónustumiðstöðvarnar virkuðu. Við getum samt alltaf gert betur þannig að ég tel mikilvægt að fara í reynslubankann, bæta þar það sem fór úrskeiðis og tryggja að við lendum ekki í neinum vandræðum með að greiða úr málum fólks. Eins og hér hefur komið fram er mikilvægt að við stöndum saman í þessu.

Ég fagna því líka að málefni björgunarsveitanna eru til skoðunar vegna þess að við vitum ekkert hvað þetta stendur lengi og það er afar mikilvægt að við höfum aðgang að því öfluga fólki sem starfar innan þeirra.