Vinnumarkaðsstofnun.
Virðulegi forseti. Það kom vissulega á óvart að sameina ætti þessar tvær stofnanir félags- og tryggingamálaráðuneytisins þar sem í samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna stendur að ekki eigi einungis að sameina þessar tvær stofnanir heldur eigi Tryggingastofnun jafnframt að vera með í þeirri sameiningu. En í því frumvarpi sem við ræðum núna er bara verið að sameina Vinnumálastofnun og Vinnueftirlitið.
Í kjölfar umræðu um þessa sameiningu vil ég koma á framfæri tveimur spurningum. Sú fyrri er hvort til grundvallar sameiningunni liggi einhver sérstök greining sem víðtæk sátt hefur náðst um hjá starfsmönnum stofnananna. Við vitum jú öll að forsenda hagræðingar er að um hliðstæða starfsemi sé að ræða og það má velta því fyrir sér hvort starfsemi sem einblínir á veikt fólk og starfsemi þar sem fókusinn er á atvinnulaust fólk séu kannski ekki mjög hliðstæðar. Önnur forsenda er að sátt ríki um sameininguna á meðal starfsfólksins, það hefur Ríkisendurskoðun margoft bent okkur á.
Seinni spurningin er hvort kannað hafi verið hvort sameiningin brjóti í bága við alþjóðleg viðurkennd sjónarmið varðandi sjálfstæði vinnueftirlits. Allar vinnueftirlitsstofnanir starfa sjálfstætt og það gildir meira að segja um mjög lítil lönd eins og Lúxemborg, Kýpur og Möltu.