138. löggjafarþing — 109. fundur,  20. apr. 2010.

Vinnumarkaðsstofnun.

555. mál
[16:30]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að bæta neinu við þessa umræðu um Evrópusambandið og mýs og ketti. Hv. þm. Ásmundur Einar Daðason fór ágætlega yfir það og ég er hjartanlega sammála honum en mig langar einfaldlega til að þakka ráðherra fyrir þau orð sem hann hafði um þær útstöðvar eða undirstofnanir sem Vinnumálastofnun rekur úti á landi. Ég vil þakka ráðherranum kærlega fyrir að staðfesta að ekki er horft sérstaklega til þess að höggva í þessar stofnanir, þ.e. fækka starfsfólki og slíkt, en ég tek undir það með honum að allar stofnanir ríkisins þurfa að sjálfsögðu að gæta hagræðis og alls sem að því snýr.

Það er mjög mikilvægt, frú forseti, að fá þessa yfirlýsingu og ég vil þakka fyrir hana.