varnarmálalög.
Frú forseti. Hv. þingmaður dregur í efa hver réttur starfsfólks Varnarmálastofnunar er. Þetta er gamalkunnug umræða. Hún kemur alltaf upp þegar menn ráðast í einhvers konar uppstokkun á stofnanastrúktúr Stjórnarráðsins. Sagan sýnir þó eigi að síður að það hefur alltaf tekist að búa svo um að menn geti gengið sáttir frá því borði.
Hv. þingmaður spyr hvort starfsfólki stofnunarinnar séu tryggð störf eftir niðurlagningu hennar. Það kemur alveg skýrt fram í frumvarpinu að samkvæmt 5. tölulið ákvæðis til bráðabirgða skal bjóða því starfsfólki Varnarmálastofnunar sem við gildistöku laganna fæst við þau verkefni sem verða falin öðrum stofnunum starf hjá þeim ríkisstofnunum sem verksamningar verða gerðir við eða þá samninga um rekstrarverkefni á grundvelli þeirrar greinar sem ég fór töluvert yfir, sem verður grein 7 a í lögunum að þessu frumvarpi samþykktu.