138. löggjafarþing — 109. fundur,  20. apr. 2010.

varnarmálalög.

581. mál
[18:51]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég verð aðeins að biðja hæstv. utanríkisráðherra að minnka sig í uppeldinu, einbeita sér að því heima hjá sér frekar en að standa hér og reyna að ala þingmenn upp. (Gripið fram í.) Hvers konar dónaskapur er þetta? (Gripið fram í: Á báðum stöðum …) Ég studdi hugmynd um stofnun innanríkisráðuneytis, ég sagði að það væri ekki galin hugmynd. Þá hugmynd er hins vegar hvergi að finna í þessu frumvarpi. Það er nákvæmlega það sem ég er að gagnrýna, frú forseti. Það er byggt á einhverri forsendu sem er svo ekki höfð til hliðsjónar. Hæstv. utanríkisráðherra ætti að lesa sitt eigið frumvarp áður en hann fer að ala fólk upp og beita annað fólk þvílíkum dónaskap sem ég hef ekki orðið vitni að áður. (Gripið fram í.)

Hæstv. utanríkisráðherra talaði um að ég væri hlynnt því að færa til verkefni Gæslunnar og ríkislögreglustjóra. Já, ég sagði það. Ég er samt ekki hlynnt því að Varnarmálastofnun verði fyrst lögð niður, verkefnunum dreift út um allt og síðan sett í einhverja aðra stofnun undir einhverju ímynduðu ráðuneyti.

Frú forseti. Hæstv. utanríkisráðherra segir að hæstv. forsætisráðherra hafi boðað að stofnun innanríkisráðuneytis mundi gerast fyrir áramót. Afsakið, en ég leyfi mér að efast um (Gripið fram í: Lýsti vilja sínum.) að sú tímasetning — lýst vilja sínum? Ég verð að minna hæstv. utanríkisráðherra á að ekki hafa allir frestir gengið upp í starfi þessarar ríkisstjórnar. Ég get nefnt einhverjar dagsetningar og eitt mál, Icesave, bara til að rifja það upp að við getum ekki endilega stillt klukkuna eftir tímafrestum hæstv. ríkisstjórnar.

Byrjum á því að skoða þessi verkefni. Byrjum á því að finna sameiningarflötinn þar. Byrjum á því að reikna út hvert hagræðið er, ekki eins og stendur í frumvarpinu að það verði af þessu umtalsvert hagræði, væntanlega hugsanlega einhvern tíma í framtíðinni eins og fjárlagaskrifstofa fjármálaráðuneytisins segir í kostnaðarmatinu. (Forseti hringir.) Ég verð að lýsa furðu minni á því að hér komi hæstv. utanríkisráðherra og reyni að nota (Forseti hringir.) það sem hagræðingarrök þegar það er alveg kristaltært að það er ekki búið að reikna eitt einasta dæmi.