varnarmálalög.
Frú forseti. Við höldum áfram að ræða frumvarp til laga um breytingu á varnarmálalögum, nr. 34/2008, og eins og kom fram í andsvari mínu við ræðu hæstv. utanríkisráðherra þá hef ég alvarlegar efasemdir um aðferðafræði hæstv. utanríkisráðherra. Ég nefndi að við lestur frumvarpsins upplifi maður það sem hálfgerðan vafning, að verið sé að reyna að pakka einhverju inn þannig að maður átti sig ekki almennilega á því hvert innihaldið er, þannig að hugsanlega sé hægt að selja einhverjum — þá væntanlega þingmönnum — pakkann eða vafninginn.
Þegar við horfum til baka þá voru mjög mikil átök um stofnun Varnarmálastofnunar og þar fóru fremst þáverandi hæstv. utanríkisráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Björn Bjarnason, þáverandi hæstv. dómsmálaráðherra. Mjög mikil átök virðast hafa verið á milli þessara tveggja ráðuneyta um það hvar ætti að staðsetja stofnunina og þau verkefni sem við tókum að okkur þegar Bandaríkjamenn ákváðu að yfirgefa landið. Við gerðum svokallaðan skilasamning í lok september 2006, þar sem fram kom að Ísland og Bandaríkin leggi sameiginlega til við NATO að Ísland taki á sig ábyrgð gisti- og notendaríkis vegna allra mannvirkja á Íslandi í eigu NATO. Síðan þurfti að skilgreina í lögum hvernig íslensk stjórnvöld hygðust taka að sér þau varnartengdu verkefni sem Bandaríkjaher hafði áður sinnt og þær þjóðréttarlegu skuldbindingar sem þeim tengdust.
Mér skilst að þá hafi verið tekin ákvörðun um að skipa ákveðinn starfshóp sem átti að koma með tillögur um hvernig ætti nákvæmlega að setja þetta upp en hæstv. utanríkisráðherra lá svo mikið á að tryggja að þessi stofnun færi örugglega undir utanríkisráðuneytið að búið var að ákveða að leggja fram frumvarp um Varnarmálastofnun áður en starfshópurinn hafði skilað af sér tillögum um hvernig ætti að gera þetta. Þetta er enn eitt dæmið úr sorgarsögu íslenskrar stjórnsýslu og stjórnmála þar sem einhvers konar smákóngadæmi virðist ráða en ekki fagleg og pólitísk stefnumörkun um það hvernig við viljum sinna slíkum verkefnum.
Þetta sjáum við svo aftur þegar við skoðum vinnuna sem tengist því að leggja stofnunina niður. Það virðist liggja svo mikið á því að uppfylla þann þátt stjórnarsáttmálans að leggja Varnarmálastofnun niður að ekki er hægt að bíða eftir því að innanríkisráðuneytið sé sett á stofn, en það á að taka við þessum verkefnum samkvæmt stjórnarsáttmálanum eða þeim upplýsingum sem hér koma fram.
Í tillögum samráðshópsins og í ræðu hv. þm. Ragnheiðar Elínar Árnadóttur kom fram að væntanlega væru tvær stofnanir sem hentuðu best til að taka að sér þessi verkefni Varnarmálastofnunar, annars vegar Landhelgisgæslan og hins vegar ríkislögreglustjóri og báðar eru þær undir dómsmálaráðuneytinu. Aðrar stofnanir sem hafa verið nefndar hér í dag eru líka undir dómsmálaráðuneytinu.
Þess vegna veltir maður fyrir sér til að einfalda málin þannig að þessi vafningur verði kannski aðeins gagnsærri og auðveldara að skilja hann: Af hverju í ósköpunum er ekki Varnarmálastofnun í heild sinni færð undir dómsmálaráðuneytið? Hefur einhver velt fyrir sér hvort það yrði ekki miklu einfaldara? Ef verkefnin eiga hvort sem er meira og minna að fara til stofnana undir dómsmálaráðuneytinu þá mundi maður telja að mun betra væri að sá ráðherra sem hefði yfirsýn yfir allar þær stofnanir tæki þessa stofnun og þessa svokölluðu breytingastjórnun að sér. Viðkomandi ráðherra dytti kannski í hug að í staðinn fyrir að standa í því að útdeila verkefnum og gera verktakasamninga og fá eitthvert starfsfólk í breytinga- og verkefnastjórnun gæti verið hentugra að taka einfaldlega tvær stofnanir, kannski Landhelgisgæsluna og Varnarmálastofnun, og sameina í eina og vonandi — sem þingmaður Suðurkjördæmis — flytja hana á Suðurnesin þar sem hún á að vera, þar sem þekkingin er til staðar.
Í staðinn er ákveðið að fara einhverja svona hringavitleysuleið. Þegar maður fer í gegnum þetta frumvarp þá virðist það efnislega fyrst og fremst ganga út á það að leggja strax niður starf forstjóra Varnarmálastofnunar og síðan að leggja stofnunina sjálfa niður 1. janúar 2011. Þá kemur enn á ný upp: Getur verið að það sé virkilega þannig að við hér á Alþingi Íslendinga séum að fara í mikla vinnu við þetta frumvarp einfaldlega til að leggja niður eitt starf? Á að spara 700 milljónir, eins og hæstv. utanríkisráðherra nefndi í ræðu sinni, með því að leggja niður eitt starf? Hefur verið einhver misskilningur í sambandi við launastefnu ríkisstjórnarinnar?
Líka er talað um að verið sé að leggja niður allt að því 60 störf, flestöll á Suðurnesjunum. Í frumvarpinu eru engin loforð um að starfsmenn haldi vinnu sinni eftir 1. janúar 2011 heldur talað um að þó að fólki verði boðin störf hjá þeirri ríkisstofnun sem verkefnin verða falin, muni réttindi og skyldur starfsmanna ekki gilda um þau störf sem ráðið er í samkvæmt því ákvæði. Í ljósi þess að þingmenn Vinstri grænna hafa margoft mótmælt því hvernig staðið hefur verið að sameiningum og breytingum á ríkisstofnunum finnst mér mjög undarlegt að þeir hafi getað samþykkt þetta í þingflokki sínum.
Síðan er ekkert að finna í frumvarpinu um það hvernig sinna eigi varnarskuldbindingum okkar gagnvart NATO. Það er ekkert fjallað um það, ekki hvaða verkefnum verður sinnt, af hvaða stofnun eða hvaða starfsmönnum, heldur er utanríkisráðherra treyst og veitt heimild samkvæmt frumvarpinu til að taka ákvarðanir um slíkt — og þá vil ég vísa til 7. gr. a — en ekki löggjafanum. Það kemur ekki pólitísk stefnumörkun frá löggjafanum um það hvernig við ætlum að standa að þeim málum sem falla nú undir Varnarmálastofnun.
Hefur farið fram fullnægjandi greining á því hvaða verkefni er yfirleitt hægt að leggja niður eða færa til annarra ríkisstofnana? Þá vísa ég til þess að NATO gerir mjög strangar kröfur gagnvart þeim aðilum og stofnunum sem taka á sig þessar þjóðréttarlegu skuldbindingar. Ef maður les um sögu utanríkismála Íslands þá kemur þar fram að lengi vel, eftir því sem mér skilst, var utanríkisráðuneytinu varla treyst fyrir ýmsum trúnaðarupplýsingum. Nú ætlum við að kippa þessu til og útdeila eftir hentugleika, engin greining liggur fyrir, engin stefnumörkun. Síðan er eitthvað sem maður hefur mjög miklar áhyggjur af og ég hef heyrt beint frá starfsmönnum NATO, jafnvel frá nokkrum af æðstu embættismönnum — hvernig orðar maður þetta á íslensku?— frá fólki sem er mjög ofarlega í (Gripið fram í: Skipuriti.) skipuriti NATO, þakka þér fyrir, sem hefur lýst yfir miklum áhyggjum af því hvert Ísland stefnir með skuldbindingar sínar gagnvart NATO og hvort það geti virkilega verið að Íslendingar hafi hugsað sér að segja sig úr NATO, hvort það geti virkilega verið. Þessar áhyggjur komu fram í samtölum sem ég hef átt við fólk sem ég held að virkilega sé ástæða fyrir okkur að hlusta á.
Ef við horfum líka á undirbúningsfrumvarpið, hvernig stjórnsýslan hefur verið, þá nefndi ég í andsvari við hæstv. utanríkisráðherra að hún hefur ekki verið til fyrirmyndar, þetta virðist fyrst og fremst ganga út á það að leggja niður stofnun sem öðrum stjórnarflokknum hugnast ekki. Síðan virðist vera eins og það þurfi að finna einhvers konar réttlætingu á þessari niðurlagningu og rökstuðning fyrir henni.
Ég held að við þurfum að gera okkur grein fyrir því að fólk á Suðurnesjunum hefur mjög miklar áhyggjur af öllum þessum breytingum, starfsmenn sem hafa reynt að sinna verkefnum sínum eins vel og þeir hafa mögulega getað. Vangaveltur hafa verið um þetta á undanförnum mánuðum og þó að frumvarpið hafi verið lagt fram hefur fólk áhyggjur. Þetta er allt svo óskýrt, þetta er um það hver hin pólitíska framtíðarsýn ríkisstjórnarinnar er um það hvernig eigi að sinna þessum verkefnum. Fyrst þarf þessi pólitíska framtíðarsýn að verða til og það er hlutverk ráðherra og okkar stjórnmálamannanna og síðan fáum við samráðshópinn eða einhverja aðra vinnuhópa til að koma með tillögur um úrlausn á þeim verkefnum. Það er ekki pólitísk stefnumörkun að mínu mati að segja að við ætlum að leggja niður stofnun, punktur og basta. Hvað þýðir það að leggja niður einhverja stofnun en ætla ekki að hætta að sinna verkefnunum?
Ég held að þetta frumvarp sé ekki tímabært, mun meiri vinna þarf að fara fram innan stjórnarflokkanna um það hvernig þeir hyggjast sinna þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands gagnvart NATO, þ.e. ef þeir hafa hug á því að Ísland haldi áfram að vera í NATO. Það er náttúrlega ákveðin pólitísk stefnumörkun ef það kemur frá ríkisstjórninni að við höfum ekki lengur í hyggju að vera aðili að NATO. Þá þurfum við að útskýra það og leggja niður fyrir okkur hvað það þýðir nákvæmlega.
Það er með öllu óljóst hvers vegna þetta frumvarp er lagt fram, hvort grundvöllur þess sé fyrst og fremst andstaða við NATO og hernað almennt eða, eins og ráðherrann nefndi í framsögu sinni, einhvers konar hagræðingar- og sparnaðarsjónarmið.
Hv. þm. Valgerður Bjarnadóttir kom einmitt upp í andsvar við ráðherrann og benti á að í umsögn fjárlagaskrifstofunnar eru engar tölur, þetta virðist bara vera eitthvað sem stefnt er að og menn sjá fyrir sér einhvers konar sparnað. Það var nú eitt af því sem kom fram í athugasemdum frá fjármálaráðuneytinu þegar farið var að skoða hvernig við hefðum staðið okkur áður í því að sameina stofnanir eða breyta stofnunum að þegar markmið eru óskýr í upphafi og menn gera sér ekki almennilega grein fyrir því hverju þeir vilja ná fram með breytingunum þá þarf ekki að koma neinum á óvart að menn nái ekki sérstaklega góðum árangri. Það þarf að vera skýrt hvað við ætlum nákvæmlega að gera og hvernig við ætlum að ná því fram.
Ég mundi gjarnan vilja spyrja nokkurra spurninga ef hæstv. utanríkisráðherra gæti séð sér fært að svara þeim af því að ég get ekki séð svör við þeim í frumvarpinu: Hver er forsenda þess að frumvarpið er lagt fram? Er það undirbúningur að formlegri eða óformlegri úrsögn úr NATO eða hagræðing, sparnaður?
Ef forsendan er hagræðing og sparnaður hvernig á nákvæmlega að ná þeim markmiðum fram? Er ætlunin að hætta að sinna ákveðnum verkefnum og hvaða verkefnum þá? Það þarf að liggja fyrir. Fyrst þetta liggur ekki fyrir í þessum gögnum held ég að það hljóti að vera eitthvað sem utanríkismálanefnd þarf að kalla eftir í vinnu sinni. Hvernig er ætlunin að hagræða og spara fyrir utan það að leggja niður starf forstjóra stofnunarinnar? Hver verður staða starfsmanna Varnarmálastofnunar eftir niðurlagningu stofnunarinnar 1. janúar 2011? Þetta er önnur spurning sem ég mundi gjarnan vilja fá svar við frá hæstv. utanríkisráðherra og ef hann getur ekki svarað því, þá er það eitt af því sem utanríkismálanefnd þarf að svara í sinni vinnu.
Hefur fullnægjandi vinna og greining farið fram innan stjórnsýslunnar til að hægt sé að leggja frumvarpið fram á þessu stigi? Er einhver sérstök ástæða fyrir því að ráðherrann velur að fara þessa leið frekar en að hreinlega að færa Varnarmálastofnun undir dómsmálaráðuneytið, eins og ég nefndi hér áðan? Mér hefur einmitt sýnst að flestir séu sammála um að dómsmálaráðherra sinni vinnu sinni mjög vel, hún fær háar einkunnir í skoðanakönnunum þannig að það ætti ekki að vera að við vantreystum henni til að sinna þessum verkefnum.
Ég vonast til þess að fá svör við einhverjum af þessum spurningum og líka við því hvernig menn sjá fyrir sér samstarfið við NATO í framhaldinu þegar við brjótum þessa stofnun svona upp. Hafa menn verið að skoða einhverja möguleika um það að byggja upp og þróa samstarfið (Forseti hringir.) við NATO frekar?