varnarmálalög.
Frú forseti. Þar sem óskaplega lítið virðist hafa breyst í vinnubrögðum stjórnvalda er svo sem kannski ekki mikils að vænta varðandi breytingar á vinnubrögðum stjórnarandstöðunnar.
Ég vil hins vegar benda á að í ræðu minni spurði ég t.d.: Af hverju var ekki möguleiki á að færa stofnunina í heild sinni undir dómsmálaráðuneytið? Ríkisstjórnin hefur þegar gert það eins og t.d. við Seðlabanka Íslands og það án nokkurra vandkvæða. Í framhaldinu er svo verið að vinna að því, að mér skilst, hvort það sé rétt pólitísk stefnumörkun að sameina Seðlabankann og Fjármálaeftirlitið. Ég hefði talið mun eðlilegra að bíða með slíkar formbreytingar, svona tæknilegar breytingar þar til fyrir lægi sú pólitíska stefnumörkun sem við höfum verið að kalla eftir um það hvernig eigi nákvæmlega að hátta öryggisstefnu landsins.
Ég spurði líka fjölmargra spurninga um það hvort menn séu að tala um að þetta sé að einhverju leyti óformleg úrsögn úr NATO. Það hafa ekki komið nein svör við því og ég verð að segja að það er töluvert áhyggjuefni.
Hvað varðar hagræðinguna þá hafa ekki komið fram nein nákvæm svör um það hvernig menn sjá hana fyrir sér. Hvernig ætla menn að ná þessum sparnaði? Það að við breytum nafni á einhverri stofnun eða útdeilum verkefnum eitthvert annað þýðir ekki að einhver þurfi ekki að vinna verkefnin og það kostar, sama hvort það er Landhelgisgæslan sem sinnir þeim eða ríkislögreglustjóri.
Með því að koma hér upp er ég að lýsa áhyggjum mínum af undirbúningi þessa máls, af forsendum ákvörðunarinnar og kannski sé ég fátt gott við þetta frumvarp þannig að ég held að ég væri þá hreinlega ekki heiðarleg gagnvart öðrum þingmönnum (Forseti hringir.) eða umbjóðendum mínum ef ég segði eitthvað sem (Forseti hringir.) mér fyndist ekki vera satt.