hlutafélög, einkahlutafélög og ársreikningar.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um hlutafélög til að auka minnihlutavernd.
Það er ljóst eftir hrunið að það hefur orðið mikið eignahrun, um 55 þúsund manns töpuðu á hlutabréfum, samtals um 80 milljarða. Það er venjulegt fólk. Sumir höfðu selt húseignina sína og breytt henni í hlutafé vegna mikils áróðurs og ráðlegginga frá bönkum og öðrum ráðgjöfum og töpuðu öllu sínu. Ég ætla ekki að minnast á lánveitendur sem töpuðu 12.000 milljörðum á Íslandi, reyndar aðallega erlendir og lífeyrissjóðir þar á meðal. Þessir aðilar hafa held ég ekkert traust til hlutabréfaformsins sem stendur. Ég held að menn geti gleymt því að reyna að selja hlutabréf á Íslandi, jafnvel þó að það sé skattaleg ívilnun og annað slíkt og það heiti nýsköpun eða eitthvað annað. Það þarf að byggja upp traust.
Það frumvarp sem við hér ræðum er ágætt skref í þá átt en einungis lítið skref. Ég tel nefnilega að það sé veila í hlutabréfaforminu sjálfu, og ég tel það ekki bara, ég tel mig hafa sannað það. Í fylgiriti I með frumvarpi sem ég hef flutt um gagnsæ hlutafélög, sem er 499. mál á þingskjali 876, sanna ég í fylgiskjali II, sem er ekkert voða langt yfirlestrar, það er ein og hálf síða held ég, að það er veila í hlutabréfaforminu eins ágætt og það nú er. Þetta er afskaplega merkileg uppfinning og merkilegt tæki fyrir einstaklinga til að taka þátt í atvinnurekstri með takmarkaðri áhættu, þar sem almenningur gæti ella ekki tekið þátt í atvinnurekstri því að hann mundi hugsanlega hætta heimili sínu.
Það er veila í hlutabréfaforminu þegar hlutafélög fara að eiga í hlutafélögum, stofna hlutafélög, svo maður tali ekki um þegar þau fara að mynda heila keðju af hlutabréfum. Mesta veilan tel ég vera í breytingu sem gerð var með lögum nr. 35/1997, 8. gr., sem var gert að kröfu EFTA og ég hef minnst á hér áður, frú forseti, en þar er starfsmönnum heimilað að kaupa hlutabréf eða fá lán frá hlutafélagi til að kaupa hlutabréf í félaginu sjálfu. Meira að segja var þeim heimilt að nota til þess hlutafélög sjálfir. Þessi breyting opnaði á gífurlegar brautir af hringferli þar sem peningar fóru í hring. Eitthvert hlutafélag, FL Group eða hvað það nú heitir, lánaði einhverjum starfsmanni segjum 10 milljónir. Hann keypti svo aftur hlutabréf af FL Group fyrir 10 milljónir, peningurinn fór hring. Það skipti engu máli hvort honum voru lánaðar 100 milljónir eða 1.000 milljónir, það skipti ekki máli. Stimpilgjald, jú, eitthvað pínulítið, smáviðnám en að öðru leyti fóru peningarnir í hring og breyttu öllu eignarhaldi í félaginu. En það gerði meira, frú forseti, það jók eigið féð vegna þess að lánið sem maðurinn tók eða hlutafélag í hans eigu, ef hann vildi bara græða og ekki tapa gerði hann það þannig, var talið til eignar hjá viðkomandi hlutafélagi, en hlutaféð telst ekki til skuldar. Þetta jók því eigið fé fyrirtækisins og þetta er stórhættulegt. Þetta stendur enn þá í lögum, að mér skilst, þetta er 2. mgr. 104. gr. hlutafélagalaga og líka í einkahlutafélögum.
Svo er náttúrlega annað, frú forseti. Hver er starfsmaður fyrirtækisins? Ef ég er ráðinn til fyrirtækis með ráðningarsamningi dagsettum í dag og ég er bara ráðinn strax, er ég orðinn starfsmaður hlutafélagsins. Það var allur heimurinn undir sem starfsmenn, sem sýnir hve það er auðvelt að koma svona hringekju í gang.
Ég held að hv. nefnd sem fær þetta ágæta frumvarp til umsagnar verði að taka á honum stóra sínum og skoða þessa þætti líka. Ég held að vonlaust sé að laga þessa veilu nema gera verulegar breytingar á hlutafélagaforminu og banna í rauninni svona hringakstur fjármagns og til þess þarf allt eignarhaldið að vera gagnsætt, alveg upp úr og niður úr. Það má ekki hafa eiganda á Tortólaeyju sem hugsanlega enginn veit hver er, sem félagið sjálft gæti hugsanlega átt. Allt eignarhaldið verður að vera gagnsætt. Og það má aldrei lána eða kaupa í eiganda sínum eða í allri eigendakeðjunni, hvergi. Ég held að nefndin verði að skoða þessa þætti og það alvarlega.
Svo er það annað. Svo gott sem þetta frumvarp er, var það einu sinni þannig, 1994, að ég birti litla auglýsingu í Mogganum, 21. apríl, af því það gekk alveg yfir mig þegar stjórn Íslandsbanka, þar sem ég var smáhluthafi í þá, pínulítill hluthafi, tilkynnti um tap. Mig minnir að það hafi verið 600 milljóna tap á bankanum og það átti bara ekkert að breytast, menn ætluðu ekki að skipta um stjórn. Stjórnin var tilnefnd af Lífeyrissjóði verslunarmanna og öðrum stórum eigendum sem virtist vera alveg sama. Menn ætluðu bara að keyra áfram með þetta tap. Í þessari auglýsingu í Mogganum bað ég um umboð annarra hluthafa bankans til að kjósa sjálfan mig í stjórn. Ég segi þessa smásögu, frú forseti, til að lýsa því hver eru vandkvæðin. Það gerðist þannig að það myndaðist eins konar skrúðganga fyrir utan húsið heima hjá mér, þar var biðröð, það komust ekki nema þrír, fjórir fyrir í eldhúsinu í einu og menn voru að skrifa undir umboð, 100 þúsund kall, 50 þúsund kall, 10 þúsund kall. Mig minnir að það hafi verið um 350 manns sem melduðu sig og veittu mér umboð. Faxvélin mín sem ég átti þá brann yfir og síminn, þessir tveir heimilissímar, hringdu bara allan daginn og sólarhringinn. Þetta gekk svona í þrjá daga. Ég náði 300 manns, einu og hálfu prósenti. Þetta verðum við að gera liprara. Það verður að gera framsal á atkvæðisrétti og öðru slíku miklu, miklu liprara, þannig að faxvélin brenni ekki yfir eða eldhúsið sé fullt í þrjá daga, sem var ósköp elskulegt því að margir vildu spjalla en það tafði svo aftur hina sem biðu úti. Þetta var ekki auðvelt. (Gripið fram í.) Nei, eins og ég segi, það brann yfir. Þetta þarf að laga. Það þarf líka að laga hópmálsóknir, að minni hluthafar geti sameinast um mál þannig að þeir séu sem einn aðili. Það þarf yfirleitt að gera litla hluthafanum miklu auðveldara að sameinast og kjósa fyrir sig einn málsvara í stjórn. Ég er ekki að benda á að það verði ég, ég var í bankaráði Íslandsbanka í eitt ár og það var svo sem mjög lærdómsríkt.
Ég held að skoða þurfi öll þessi mál frá sjónarhorni litla hluthafans, eins og hv. þm. Einar K. Guðfinnsson hefur bent á ítrekað, og gæta að því að þeir eigi auðveldara með að sameinast. Það er nefnilega þannig, eins og hv. þm. Einar K. Guðfinnsson hefur bent á að það eru hagsmunir atvinnulífsins að litli hluthafinn hafi sinn rétt og menn passi þann rétt og feli það ekki bara stjórnunum, eins og dæmin hafa sýnt, að gæta hagsmuna litla hluthafans. Þær gerðu það nefnilega alls ekki. Þær virkilega holuðu þessi fyrirtæki að innan.
Ég held að hv. nefnd þurfi að skoða þessi mál öllsömul. Í fyrsta lagi með þetta krosseignarhald, raðeignarhald og lánveitingar við kaup á hlutabréfum o.s.frv., þ.e. að auka gagnsæið. Síðan að koma á auðveldari hópmálssóknum, liprari umboðum og yfirleitt þannig að litlir hluthafar eigi miklu auðveldara með að sameinast. Þá kannski, frú forseti, tekst okkur að byggja upp traust að nýju þannig að hér verði aftur selt eitt einasta hlutabréf og einhver sé tilbúinn til að lána þessum makalausu hlutafélögum.