138. löggjafarþing — 109. fundur,  20. apr. 2010.

hlutafélög, einkahlutafélög og ársreikningar.

569. mál
[22:21]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra ágæt svör. Ýmislegt kemur upp við að hlusta á svar ráðherrans. Eitt er að þetta eigi bara við óskráð félög vegna þess að þau félög sem skráð eru á markað hafi aðrar leiðir, það hefur nú stundum gerst að vegna misfærslu á þeim félögum hafi menn ekki neinar útgönguleiðir. Ein ástæða þess að menn vilja fara út er sú að verið er að beita meirihlutavaldinu í þágu einhvers annars en hagsmuna félagsins og ef menn fara þessa matsmannsleið getur fyrirtækið kannski verið orðið það illa statt að ekkert mat sé lengur í því. Ég þekki dæmi þess að menn hafi haft allt aðra hagsmuni og misnotað áhrif sín í félaginu og faktískt eyðilagt það svo það endaði í gjaldþroti. Á tveimur árum var farið með stöndugt félag í gjaldþrot og það er örugglega ekki einangrað tilfelli.

Þannig að ef menn átta sig of seint á því hvað er í gangi þá er spurning hvort það sé einhver lausn að kalla til dómskvadda menn. Hvort menn séu ekki bara of seinir og engin verðmæti eftir í fyrirtækinu til að semja um.