rannsókn á fjárhagsstöðu skuldugra heimila.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um rannsókn á fjárhagsstöðu skuldugra heimila sem er á þingskjali 961, 570. mál þingsins. Frumvarpinu er ætlað að tryggja ráðherra aðgang að þeim gögnum sem honum eru nauðsynleg til að geta framkvæmt rannsókn á fjárhagsstöðu skuldugra heimila og meta áhrif af þeim aðgerðum sem stjórnvöld hafa nú þegar gripið til. Tilgangur rannsóknarinnar er þó ekki að koma á fót varanlegu gagnasafni með þeim upplýsingum sem ráðherra verður heimilt að safna, heldur að söfnun upplýsinga geti staðið yfir meðan þörf er á í ljósi tímabundinna og óvenjulegra efnahagslegra aðstæðna í samfélaginu. Mælt er fyrir um að söfnun upplýsinga geti varað í allt að eitt til tvö ár og að allri úrvinnslu verði lokið innan þriggja ára hið mesta. Mun ég nú, hæstv. forseti, fjalla nánar um tildrög frumvarpsins.
Í kjölfar þeirrar fjármálakreppu sem reið yfir á árinu 2008 hefur fjárhagsstaða skuldugra heimila versnað mikið sem kunnugt er. Snemma á árinu 2009 ákvað Seðlabanki Íslands að safna gögnum til að meta áhrif fjármálakreppunnar á heimilin í landinu. Í því skyni veitti Persónuvernd bankanum leyfi til að safna upplýsingum frá fjármálafyrirtækjum, skattyfirvöldum og Vinnumálastofnun um fjármál og atvinnu einstaklinga og samkeyra þær upplýsingar til frekari vinnslu. Samhliða samkeyrslunni voru þau persónuauðkenni sem upplýsingarnar geymdu dulkóðuð með dulkóðunarlykli sem Persónuvernd geymdi. Leyfi Persónuverndar voru bundin því skilyrði að þeim lykli yrði eytt þegar rannsókninni lyki og fór sú eyðing fram í lok febrúar 2010. Seðlabankinn hefur ákveðið að sækja ekki aftur um leyfi hjá Persónuvernd til að framkvæma nýja rannsókn á grundvelli nýrra gagna. Ég tel hins vegar afar brýnt að stjórnvöld hafi áfram góða yfirsýn yfir þróun þessara mála hverju sinni svo ákvarðanir stjórnvalda um aðgerðir á þessu sviði verði teknar með upplýstum og skilvirkum hætti.
Ég legg því til með þessu frumvarpi að efnahags- og viðskiptaráðuneytið taki verkefnið yfir til sín og afli nýrra og ítarlegri gagna um skuldastöðu heimilanna. Rannsóknin mun m.a. taka tillit til kyns, aldurs, fjölskyldugerðar og hvort fólk er búsett hér á landi eða erlendis, skulda og eigna einstaklinga, launatekna, hvers kyns tilfærslu tekna og greiðsluúrræða sem þegar hafa verið sett í framkvæmd af stjórnvöldum. Hér er um mjög víðtæka gagnasöfnun að ræða og mun rannsóknin taka tillit til fleiri þátta við mat á fjárhagsstöðu skuldugra heimila en Seðlabankinn hefur þegar gert.
Í frumvarpinu er mælt fyrir um hjá hvaða skráarhöldurum ráðherra er heimilt að afla gagna og hvernig standa skuli að afhendingu upplýsinga vegna rannsóknarinnar, svo sem hversu nákvæmar og sundurgreindar umbeðnar upplýsingar skuli vera, hvernig kóðun einstakra tegunda upplýsinga skuli háttað og hvernig haga skuli frágangi hinna umbeðnu gagna að öðru leyti. Einnig er mælt fyrir um að aðilar afhendi upplýsingarnar án endurgjalds.
Skýrt er kveðið á um að hinar samkeyrðu upplýsingar megi með engu móti innihalda persónuauðkenni, heldur einungis auðkenni í stað kennitalna og fjölskyldunúmera. Í þessu samhengi er rétt að geta þess að í frumvarpinu er lagt til að Persónuvernd verði falið að mæla fyrir um útfærslu slíkrar vinnslu og þeirra aðferða sem skuli beitt við birtingu á niðurstöðum rannsóknar. Meðal aðferða af því tagi má einkum nefna svonefnda sterka dulkóðun, þ.e. dulkóðun umræddra persónuauðkenna með þeim algrímum og dulkóðunarlyklum af þeirri lengd sem hverju sinni er almennt viðurkennt að valdi því að óraunhæft verði að afkóða hin dulkóðuðu auðkenni, svo sem vegna þess að slíkt mundi kalla á vinnslu sem alla jafna tæki mörg ár á tölvubúnaði sem teldist mjög öflugur.
Þá er ekki talin nein þörf á að aðrir en þeir fulltrúar ráðherra sem annast samkeyrslu gagna og dulkóðun persónuauðkenna hafi aðgang að hinum mótteknu gögnum eða umræddri samkeyrslu og dulkóðun. Því er mælt fyrir um þrönga aðgangsstýringu þessarar vinnslu. Samt sem áður munu hinar samkeyrðu upplýsingar ekki verða ópersónugreinanlegar. Þvert á móti munu þær innihalda mikið magn upplýsinga um skráða einstaklinga frá ýmsum skráarhöldurum, sem valda því að skráarhaldararnir geti með einföldum hætti afhjúpað hina skráðu. Jafnvel mætti nota upplýsingar sem birtar eru opinberlega, svo sem úr álagningarskrám, í sama tilgangi. Þannig liggja gild rök er lúta að upplýsingaöryggi til viðbótar þeim er rakin eru hér að framan til grundvallar banni við aðgangi annarra en ráðherra að hinum samkeyrðu upplýsingum.
Í frumvarpinu er hnykkt á því í hvaða tilgangi ráðherra er heimilt að vinna með hinar samkeyrðu upplýsingar. Þá er sérstaklega tekið fram að úr hinum samkeyrðu upplýsingum megi eingöngu taka saman ópersónugreinanlegar upplýsingar til frekari kynningar eða birtingar en þar er einkum vísað til tölfræðilegra upplýsinga um hópa í viðeigandi lágmarksstærð, t.d. 100 einstaklinga. Því til samræmis er að finna tæmandi tilgreiningu á því með hvaða hætti skuli fara með afurðir rannsóknarinnar. Ákvörðun um birtingu er falin ráðherranefnd um efnahagsmál en hana skipa forsætisráðherra, efnahags- og viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra, samanber þjóðhagsáætlun fyrir árið 2010, 138. löggjafarþing, þingskjal 2, bls. 6.
Að lokum er kveðið skýrt á um eyðingu annarra gagna en þeirra sem innihalda niðurstöður rannsóknarinnar, þ.e. tölfræðilegar upplýsingar um hópa einstaklinga. Eins og gefur að skilja er hér um mjög kostnaðarsamt verkefni að ræða og liggur fyrir að kostnaður Seðlabankans hafi hlaupið á tugum milljóna kr. Samkvæmt kostnaðarmati fjármálaráðuneytisins er gert ráð fyrir að heildarkostnaður við frumvarpið og rannsóknina sem það mun standa að baki muni nema allt að 50 millj. kr. á næstu þremur árum.
Hæstv. forseti. Ég tel afar brýnt að stjórnvöld hafi á næstu tveimur til þremur árum aðgang að öflugu rannsóknartæki til að fylgjast grannt með skuldaaðlögun heimilanna, greina hver raunverulegur vandi heimilanna er um fram það sem nú þegar er þekkt og hvaða hópar eru verst settir. Með slíkri rannsókn eru mun meiri líkur á því að stjórnvöld bregðist rétt við vanda heimilanna umfram það sem þegar hefur verið gert og að fjármunum landsmanna sé vel varið. Frumvarpi þessu er ætlað að búa þeirri rannsókn umgjörð.
Ég legg til að máli þessu verði að umræðu lokinni vísað til 2. umr. og hv. efnahags- og skattanefndar.