varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá Guðfríði Lilju Grétarsdóttur um að hún verði í fæðingarorlofi næstu vikur og geti ekki sótt þingfundi. Í dag tekur sæti á Alþingi varamaður hennar, Margrét Pétursdóttir verkakona.
Kjörbréf Margrétar Pétursdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt. Hún hefur ekki tekið sæti á Alþingi áður og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni samkvæmt 2. gr. þingskapa.
[Margrét Pétursdóttir, 3. þm. Suðvest., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]