orð seðlabankastjóra um innstæðutryggingar.
Frú forseti. Hv. þingmaður hreyfir hér mikilsverðu máli. Það stendur einfaldlega þannig að bæði eldri og nýlegri yfirlýsingar af hálfu íslenskra stjórnvalda, um að allar innstæður í íslenskum fjármálastofnunum verði tryggðar, eru í fullu gildi. Á þá yfirlýsingu reyndi óbeint, má segja, á sumardaginn fyrsta. Að sjálfsögðu stóð ekkert annað til en að tryggja framkvæmd þeirra aðgerða sem þá var óhjákvæmilegt að ráðast í og við ræðum frekar á eftir þannig að allar innstæður yrðu færðar yfir og þeim komið í skjól.
Um það mál er hins vegar sömuleiðis það að segja að ég held að enginn sjái fyrir sér að slík allsherjartrygging á öllum innstæðum í fjármálastofnunum verði við lýði um langa framtíð, væntanlega ekki ætlunin og ekki æskilegt. Þá þarf að hverfa frá því með einhverjum hætti. Það verður þá fyrst gert þegar nýtt innstæðutryggingarkerfi er komið á. Það er til umfjöllunar á Alþingi í frumvarpsformi að innleiða nýjar reglur í þeim efnum og hækka fjárhæðirnar, sem áður voru hinar margrómuðu 20.887 evrur, í 50.000 evrur per reikning.
Í framhaldi af því og þegar hið nýja innstæðutryggingarkerfi verður komið til sögunnar og farið að virka — það verður auðvitað ekki sterkt fjármagnað í byrjun — hlýtur að koma til álita með hvaða hætti þessar yfirlýsingar, sú sem fyrst var gefin af fyrri ríkisstjórn í október 2008 og síðan endurnýjuð a.m.k. tvisvar sinnum af núverandi ríkisstjórn, verða þá aftengdar. Hvernig það verður gert nákvæmlega og hvenær get ég ekki svarað hér og nú enda ekki endilega víst að það væri það skynsamlegasta. Kannski innleiða menn bara hið nýja fyrirkomulag í einhverjum skrefum sem liggja fyrir fyrir fram og svo hefur það sinn gang. Það er mikilvægt að það sé gert þannig að enginn óróleiki skapist í kringum slíka aðgerð.