138. löggjafarþing — 112. fundur,  27. apr. 2010.

tilkynning um dagskrá.

[13:31]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Um klukkan 2 í dag, að loknum dagskrárliðnum Störf þingsins, fer fram umræða utan dagskrár um stöðu og fjárhagslegar afleiðingar eldgossins í Eyjafjallajökli. Málshefjandi er hv. þm. Árni Johnsen. Fjármálaráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 2. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.

Þá vill forseti geta þess að atkvæðagreiðslur verða um kl. 14.30 og nýr fundur að þeim loknum.