138. löggjafarþing — 112. fundur,  27. apr. 2010.

staða og fjárhagslegar afleiðingar eldgoss í Eyjafjallajökli.

[14:09]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Það er alveg hárrétt hjá hv. málshefjanda, að mörgu er að hyggja í sambandi við þetta mál. Ég vil fyrst byrja á að taka undir með málshefjanda og fagna því hversu mikil samstaða hefur einkennt öll viðbrögð við þessum atburðum og auðvitað þakka það ómetanlega sjálfboðaliðastarf sem verið er að vinna sem hefur mikið gildi, ekki bara vegna þeirra starfa sem þar eru unnin sem slíkra heldur sýnir það samstöðu og samhug í verki.

Það sem að mér beinist hér og var spurt sérstaklega um og er tilefni umræðunnar eru kostnaðaráhrif vegna þessara atburða. Það má taka saman bæði eldgosið í Eyjafjallajökli og áður á Fimmvörðuhálsi vegna þess að það er ljóst að þar var þegar orðinn nokkur áfallinn kostnaður vegna gæslu og fleiri þátta. Það er verið að taka þennan kostnað saman núna og safna honum saman í stofnunum og ráðuneytum. Það er gert ráð fyrir því að gróft mat muni liggja fyrir í lok vikunnar. Meginþungi beins tjónakostnaðar lendir á Viðlagatryggingu og Bjargráðasjóði hvað varðar bætur og svo á ýmsum stofnunum og ráðuneytum, svo sem Vegagerðinni o.fl., sem eftir því sem kostur er verður þá bætt af fjárheimildum ársins eða þá bætt sérstaklega.

Helstu kostnaðarþættirnir eru áætlaðir í fyrsta lagi tjón Viðlagatryggingar. Viðlagatrygging bætir tjón af öllum brunatryggðum húseignum og lausafé af völdum eldgosa, jarðskjálfta, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða. Núverandi sjóðsstaða eða greiðslugeta Viðlagatryggingar Íslands er um 37 milljarðar kr. þannig að það er ljóst að hún á ekki í neinum vandræðum með að mæta því tjóni sem hún þarf að bæta þó að það liggi ekki endanlega fyrir. Þó er ljóst að það eru fjárhæðir sem eru hverfandi í samanburði við myndarlegan fjárhag Viðlagatryggingar. Viðlagatryggingin mun í einhverjum mæli taka þátt í fyrirbyggjandi aðgerðum, þ.e. aðgerðum sem eru beinlínis til þess að verja mannvirki, sem tryggingin mundi ella bæta, eða þá bæta beint tjón ef það hefur orðið.

Hlutverk almennrar deildar Bjargráðasjóðs er að veita einstaklingum og félögum, reyndar áður sveitarfélögunum, fjárhagsaðstoð til að mæta meiri háttar tjóni af völdum náttúruhamfara á öllum gjaldskyldum fasteignum, girðingum, túnum og rafmagnslínum sem tengjast landbúnaðarframleiðslu, heyi vegna uppskerubrests af völdum óvenjulegra kulda, þurrka, óþurrka, kals o.s.frv. Bjargráðasjóður bætir ekki tjón ef almennrar vátryggingaverndar nýtur við eða hægt er að fá bætur sóttar með öðrum hætti. Í grundvallaratriðum er skilningurinn sá að tjón á túnum og girðingum og eftir atvikum skurðum og öðru slíku vegna öskufalls eða flóða falli á Bjargráðasjóð. Stærstur hluti af því tjóni sem hefur orðið á jörðum, ræktarlandi og girðingum fellur undir verksvið Bjargráðasjóðs. Þar eru núna um 375 millj. kr. til í sjóði. Það liggur að sjálfsögðu ekki fyrir, eins og ég áður sagði, hver nákvæmlega kostnaðurinn verður sem mun falla á sjóðinn en þegar hefur verið tekin ákvörðun um að honum verður gert kleift að bæta það sem honum ber að bæta lögum samkvæmt.

Það er enn erfiðara að áætla nákvæmlega þann kostnað sem lendir á einstökum stofnunum og ráðuneytum. Hann er bæði beinn og óbeinn, þar má væntanlega reikna með að mestur þunginn lendi hjá Almannavörnum. Björgunarsveitir hafa unnið ómetanlegt starf og tekið á sig kostnað sem að sjálfsögðu verður að bæta þeim. Lögreglan, Landhelgisgæslan, Vegagerðin, heilbrigðisstofnanir, rannsóknastofnanir og vísindastofnanir hafa allar þurft að leggja mikið af mörkum og tekið á sig útgjöld vegna þessa. Er þá ekki talinn með kostnaður vegna röskunar á samgöngum eða annað slíkt.

Eins og áður sagði ber að sjálfsögðu að reyna að bæta þennan kostnað eins og hann rúmast innan fjárheimilda, það getur verið á kostnað annarra verkefna eða áforma sem verða þá að bíða á meðan tekist er á við þennan kostnað. Í einhverjum mæli verður óumflýjanlegt að bæta þetta einfaldlega upp með aukafjárveitingum eða grípa til óráðstafaðra fjárlagaliða sem er ætlað að mæta ófyrirséðum kostnaði og til staðar eru í fjárlögum.

Sem dæmi um útgjöld af þessu tagi má nefna þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar í morgun að kaupa 6 millj. kr. mjög sérhæft mælitæki til þess að fylgjast með svifryki og öskufoki í nágrenni eldstöðvanna. Sömuleiðis ákvað ríkisstjórnin í morgun að leggja fram fjármuni í markaðsátak til að verja ferðaþjónustugreinina þannig að það takist að gera það sem mögulegt er (Forseti hringir.) til að koma í veg fyrir að þessir atburðir valdi verulegu tekjutapi og þjóðhagslegum skakkaföllum vegna samdráttar í ferðaþjónustu.