138. löggjafarþing — 112. fundur,  27. apr. 2010.

staða og fjárhagslegar afleiðingar eldgoss í Eyjafjallajökli.

[14:20]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Virðulegur forseti. Ég ræði þetta mál í forföllum þingmanns Hreyfingarinnar í kjördæminu, Margrétar Tryggvadóttur, sem er forfölluð vegna veikinda en hún hefur einmitt verið á þessu svæði.

Afleiðingar þessa eldgoss eru mismiklar. Þær eru mjög alvarlegar fyrir suma, sem betur fer tiltölulega fáa. Þær eru að einhverju leyti alvarlegar fyrir talsvert stærri hóp fólks, en viðvarandi tjón verður tilfinnanlegt fyrir t.d. ferðaþjónustu. Það fólk þarf að aðstoða eins og komið hefur fram.

Fljótlega eftir eldgosið fóru í gang viðbragðsáætlanir sem reyndust vel. Enginn slasaðist, enginn lést, það hefði verið hægt að koma fólki í burtu tímanlega ef aðstæður hefðu orðið miklu verri en raunin varð þannig að að því leytinu til hefur afleiðingum af þessum náttúruhamförum verið mætt með þeim hætti að ekki hefur hlotist af mjög alvarlegt tjón.

Það sem þarf að ræða í framhaldinu er að það sem gerðist var að þarna var heilu landsvæði lokað sem hefur mjög afgerandi áhrif á atvinnustarfsemi á því svæði. Ég átti þess kost að fara þarna um fljótlega eftir að gosið hófst og ég ræddi m.a. við veitingamanninn í Vík í Mýrdal sem býr á Hvolsvelli og keyrði þarna fram og til baka tvisvar til fjórum sinnum á dag. Hann vildi meina, og ég tek undir þá skoðun hans, að þegar svona gerist þurfi einfaldlega miklu frekar að leitast við að stýra umferð um svona svæði en að loka þeim algerlega. Eðlilegast er að þeim sé lokað til að byrja með þegar fólk er í óvissu um þá hættu sem af því stafar en (Forseti hringir.) mjög oft í þeim tilvikum er hægt að hleypa fólki sem á erindi um þessi svæði og mundu þá (Forseti hringir.) þessar afleiðingar ekki hafa eins rosalega slæm áhrif og gerst hefur í þessu tilviki.