138. löggjafarþing — 112. fundur,  27. apr. 2010.

staða og fjárhagslegar afleiðingar eldgoss í Eyjafjallajökli.

[14:27]
Horfa

iðnaðarráðherra (Katrín Júlíusdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég verð að segja í upphafi að ég dáist að styrk þeirra íbúa sem búa á þessu svæði, hvað þeir hafa sýnt mikið æðruleysi við þessar gríðarlega erfiðu aðstæður. Hugur okkar hefur auðvitað hvílt æðioft hjá þeim undanfarnar tæpar tvær vikur. Við vitum að röskun á daglegu lífi og svona langvinn röskun á daglegu lífi fólks, ekki síst barna, getur verið gríðarlega erfið. Þess vegna skiptir öllu máli að vel sé stutt við bakið á þessum íbúum og að ríkisstjórnin leggi sig alla fram um það ásamt samfélögunum í héraði, þ.e. sveitarstjórnum ásamt Almannavörnum og öðrum aðilum sem að þessum málum koma. Við ætlum að standa að baki þessum íbúum eins og vel kom fram í máli hæstv. fjármálaráðherra.

Sú atvinnugrein sem kannski helst og verst verður fyrir barðinu á þessu gosi er ferðaþjónustan. Þar blasir við grafalvarleg staða en alveg frá því að gosið hófst höfum við verið með viðbragðsteymi í gangi sem hefur verið haldið utan um úr ferðamálaráðuneytinu. Þar höfum við unnið að hinum ýmsu viðbrögðum við ástandi sem blöstu við þá og þegar, en jafnframt reynt að greina stöðuna og hvaða áhrif þetta muni hafa til lengri tíma og bregðast við því. Þetta er ein af undirstöðuatvinnugreinum okkar og því geta þessir dagar skipt gríðarlegu máli þegar kemur að allri áætlanagerð í ferðaþjónustunni allri. Þess vegna sáum við strax að ráðast þyrfti í öflugt landkynningarátak í kjölfarið á þessu gosi. Það er ánægjulegt að segja frá því að ríkisstjórnin samþykkti í morgun að verja allt að 350 millj. kr. í slíkt átak auk þess sem greinin og sveitarfélög munu jafnframt koma með fjármuni inn í það. Von okkar er að þetta átak geti verið af stærðargráðunni 600–700 millj. kr. sem mun skipta gríðarlegu máli í að verja markaði (Forseti hringir.) sem við höfum þegar unnið hjá ferðaþjónustunni og koma í veg fyrir langvinn áhrif á greinina.