138. löggjafarþing — 112. fundur,  27. apr. 2010.

staða og fjárhagslegar afleiðingar eldgoss í Eyjafjallajökli.

[14:34]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Ég tek undir það að við skulum vona og óska þess að þetta endi allt vel og ef sambúðin við landið hefur kennt okkur eitthvað þessi ellefu hundruð ár er það það að gefast ekki upp þó að á ýmsu gangi í sambúð okkar við náttúruöflin.

Eins og ég sagði í minni fyrri ræðu er stefnt að því að skýrari mynd liggi fyrir núna í lok þessarar viku af því sem varðar hina beinu kostnaðarþætti. Það hefur lítið upp á sig að nefna tölur í þeim efnum meðan þær eru að mestu leyti skot út í loftið en við getum þó auðvitað nálgast þetta út frá stærðargráðum. Við vitum að tjón sem þarf að bæta í slíkum tilvikum, vegarkaflar sem fara í sundur, er mælt í milljónum, í mesta lagi milljónatugum en ekki hundruðum milljóna eða hátt í milljarð eins og það hefði kostað ef byggja hefði þurft nýja Markarfljótsbrú. Það er sömuleiðis ljóst að tjón á ræktunarlandi, girðingum og skurðum er væntanlega fremur mælt í milljónum á hverju býli en með stærri tölum.

Stærstu tölurnar og mesta óvissan tengist auðvitað því ef meiri háttar efnahagsáhrif og þjóðhagsleg áhrif verða af þessum atburðum í gegnum hagsmuni ferðaþjónustunnar. Sú röskun sem þegar er orðin er auðvitað orðin mjög dýr hjá samgönguaðilum. Flugrekendur, ýmsir þjónustuaðilar og opinberar stofnanir hafa þegar orðið fyrir miklum kostnaði vegna þeirra atburða sem tengjast fyrst og fremst röskun á flugsamgöngum. Þar skiptir miklu máli í framhaldinu hvernig til tekst í því upplýsingaátaki sem nú á að fara í, sérstaklega til þess að reyna að miðla réttum og hlutlægum upplýsingum yfirvegað, það er það sem við þurfum á að halda.

Um framvindu gossins, sem er auðvitað hið stóra ófyrirséða í þessu, er fátt hægt að segja annað en það að við getum vonað að það láti lítið fyrir sér fara. En við vitum líka að jafnvel þó að hlé verði á eða að það sé rólegur gangur í gosinu er ekkert hægt að fullyrða um framhaldið, það getur tekið sig upp aftur o.s.frv. Þá gildir enn og aftur það sama, að það eina sem við getum gert (Forseti hringir.) er að vera eins vel undirbúin og mögulegt er og taka hlutunum af æðruleysi.