138. löggjafarþing — 112. fundur,  27. apr. 2010.

stjórn fiskveiða.

370. mál
[14:44]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S):

Virðulegi forseti. Í 1. gr. frumvarpsins var gert ráð fyrir því að auka aflaheimildir um 6 þús. tonn, sérstaklega til strandveiðibáta. Síðan hefur ríkisstjórnin hugsað sig um og setur fram aðra grein og kallar þetta aftur því að gert er ráð fyrir að á næsta ári verði þessar aflaheimildir til strandveiðiflotans dregnar frá áður en úthlutun kvóta til minni og stærri báta fer fram. Þetta er auðvitað gjörsamlega óþolandi aðferð, við erum ósammála því að þetta sé gert með þessum hætti. Við teljum að úr því að þessi leið er farin, að hefja strandveiðarnar, sé eðlilegt að halda þeim aflaheimildum utan við þannig að þær komi ekki til frádráttar. Þess vegna erum við á móti að samþykkja þessa grein.