138. löggjafarþing — 113. fundur,  27. apr. 2010.

samkeppnislög.

572. mál
[15:52]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Gylfi Magnússon) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að leiðrétta smámisskilning. Það er að vísu rétt að í frumvarpinu eru lögð til tvenns konar gjöld vegna starfsemi Samkeppniseftirlitsins en gert er ráð fyrir að tekjurnar renni í ríkissjóð en ekki til Samkeppniseftirlitsins. Það skiptir væntanlega ekki viðskiptavinina, ef við viljum kalla þá það, miklu máli en það skiptir stofnunina augljóslega máli.

Það er vissulega málefnalegt að ræða stærðarmörk vegna samruna og samrunatilkynninga og ég skil mjög vel að sitt sýnist hverjum um það. Vissulega er líka málefnalegt sjónarmið að ef til vill væri skynsamlegt að einblína sérstaklega á stærstu fyrirtækin frekar en smærri eða meðalstór fyrirtæki. Í reynd verður framkvæmdin að nokkru leyti sú, þ.e. óhjákvæmilega forgangsraðar stofnun eins og þessi sem hefur takmörkuð fjárráð og takmarkaðan mannafla til að vinna verkefni og leggur meiri þunga á vinnu með markaði sem skipta miklu máli þar sem fyrirtæki eru stór og velta mikil og miklir hagsmunir undir. Það er allt hægt innan núverandi laga þótt vitaskuld geti sú staða komið upp að það sé mikil vinna að sinna samrunatilkynningum frá fyrirtækjum sem velta ekki mjög miklu í hlutfalli við stærð hagkerfisins.

Allur samanburður við önnur lönd, þótt það séu ekki stærri lönd en Danmörk, verður vitaskuld dálítið snúinn. Það er spurning hvort þá eigi að hafa samrunamörkin eða þessi krónumörk í hlutfalli við stærð hagkerfisins eða krónutölu. Það er ágæt umræða en við höfum því miður ekki tíma til að ljúka henni hér.