138. löggjafarþing — 113. fundur,  27. apr. 2010.

stefnumótandi byggðaáætlun 2010--2013.

521. mál
[20:03]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alltaf stutt í hortittina í umræðunni hér í sölum þingsins. Það að kalla umræðu af þessum toga og þær athugasemdir sem ég hef fært fram þess eðlis að ég fallist á og aðhyllist það að vilja deila og drottna er alrangt. Ég legg áherslu á að núverandi ríkisstjórn hefur aftur á móti unnið í þeim anda.

Það ganga t.d. þvert gegn vilja heimamanna í uppsveitum Suðurlands þær ákvarðanir sem ríkisstjórn Íslands hefur eða hefur ekki tekið þvert á vilja þeirra sem þar ráða ríkjum, kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum. Ber þetta vott um vilja til þess að virða og verða við óskum hinna einstöku landshluta eða einstöku svæða? Stjórnvöld koma síðan hingað í sali Alþingis, virðulegi forseti, og gera athugasemdir við það ef þingmaður leyfir sér að hafa skoðanir á því verklagi sem ríkisstjórn Íslands viðhefur í svona stóru máli sem byggðamálin eru og það er persónugert í skoðunum hans í einhverri tómri vitleysu.

Ég er stoltur af íþróttabænum Akureyri, það var ekki það sem ég var að ræða. (Gripið fram í.) Ég vil síður ræða úrslit handboltaleiks í gær af því að hæstv. ráðherra nefndi eingöngu skíðin. Við erum mjög góð í handbolta á Akureyri og betri en flesta grunar, það er annað mál. (Gripið fram í.) Það sem ég er að leggja áherslu á er að umræðan, eins og hún er á þessum þjóðfundum, er vissulega góð að mörgu leyti, það er gott þegar stjórnvöld hafa samráð við heimamenn. En hún er að mínu mati á ákveðnum villigötum, einfaldlega vegna þess að hún setur fram kröfugerðina á hendur ríkissjóði (Forseti hringir.) og sveitarsjóðum, og það er miður.