stefnumótandi byggðaáætlun 2010--2013.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu. Mig langaði einfaldlega að tjá mig aðeins um þá hugmynd hv. þingmanns um að setja fram heildstæða samgöngustefnu.
Til er afskaplega mikið af stefnumótandi plöggum og tillögum að þeim í þinginu, sérstaklega með tilkomu þeirrar þingsályktunartillögu sem við ræðum í dag. En er ekki einfaldlega málið að gera þær stefnumótandi ályktanir sem lagðar eru fram skiljanlegar þannig að þær þjóni markmiði sínu? Ég er algjörlega sammála hv. þingmanni um það að samgöngur eru stærsta byggðamálið. Góðar samgöngur eru lykillinn að því að hvert samfélag nái að blómstra. Þess vegna skil ég ekki af hverju textinn í þessari þingsályktunartillögu er svona óskiljanlegur að mínu mati, af hverju stendur ekki einfaldlega hér hver er — í 7. gr. laga um Byggðastofnun stendur að ríkisstjórnin eða iðnaðarráðherra skuli leggja fram byggðaáætlun þar sem lýst skuli markmiðum og stefnu ríkisstjórnarinnar.
Nú er hv. þingmaður í stjórnarliðinu, er ekki einfaldlega málið að lýsa markmiðum og stefnu ríkisstjórnarinnar og þar á meðal þeirri skoðun sem við deilum, að því er mér heyrist, að góðar samgöngur séu lykillinn að blómlegri byggð í texta þessarar áætlunar? Maður hefur það svolítið á tilfinningunni, eins og ég lýsti áðan, að þetta sé svona keisari án fata. Ég skil einfaldlega ekki hvers vegna þetta er ekki skýrt, því að ég held að við séum nokkurn veginn öll sammála um hvað eigi að standa þarna.