stefnumótandi byggðaáætlun 2010--2013.
Frú forseti. Já, við getum haft skoðun á því hversu ljóst eða óljóst orðalag er á þingsályktunartillögum eða markmiðssetningu áætlana eins og þessara en eins og fram hefur komið er þetta plagg innlegg inn í annað stærra plagg og það er kannski það sem skiptir mestu máli, sú vinna sem mun eiga sér stað varðandi sóknaráætlunina. Ef þingmaðurinn vill vita nánar um markmið ríkisstjórnarinnar í byggðamálum get ég líka bent þingmanninum á að kynna sér stjórnarsáttmálann, þar er ágætur kafli um framtíðarsýn ríkisstjórnarinnar í þeim efnum, en mér finnst þetta koma ágætlega fram í inngangi í þessari þingsályktunartillögu.
Mig langaði aðeins, af því að hv. þingmaður deilir með mér skoðunum um mikilvægi samgangna, að fá að hnykkja á því þegar ég kem hér upp aftur að ég held í fullri alvöru að það væri ástæða til að fara að efla stefnumótun í samgöngumálum, taka upp einhvers konar byggðatengda samgönguáætlun, þ.e. áætlun sem ekki er bara sett fram í ljósi framkvæmdastöðunnar hverju sinni og hagkvæmni einstakra samgönguframkvæmda, hvar auðveldast og þægilegast sé að ráðast í framkvæmdir hverju sinni, heldur sé beinlínis tekið mið af þeirri grunngerð sem þarf að vera í öllum byggðarlögunum til að samgöngukerfið þjóni tilgangi sínum sem lífæð. Það er gaman að fá að koma þessu að hér af þessu tilefni.