stefnumótandi byggðaáætlun 2010--2013.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður hélt alveg ágæta ræðu og ég verð að segja að ég var sammála mjög mörgu sem þar kom fram. Ég var ekki síst sammála því þegar hv. þingmaður fór yfir það hvernig áætlanir á vegum hinna mismunandi ráðuneyta hafa ekki náð að vinna saman. Það var að mínu mati mjög göfugur leiðangur sem lagt var af stað í þegar lagagreinin um byggðaáætlun var sett inn í lög um Byggðastofnun og markmiðin þar eru vissulega góð. En við skulum horfast í augu við það að þau markmið hafa aldrei náðst, þ.e. að þær áætlanir þvert á ráðuneyti og þvert á stofnanir nái að vinna saman, og hv. þingmaður færði eiginlega bestu rökin sem ég hef heyrt í þessum sal í dag fyrir samþættingu og áætlunargerð sem er í vinnslu innan Sóknaráætlunar 20/20. Þar er verið að vinna að því að koma þessu þannig fyrir í stjórnsýslunni að við lendum ekki á vegg eins og hefur ávallt verið, á vegg sem heitir fjárlagarammar ráðuneyta. Það er það sem hefur staðið í vegi fyrir því að byggðaáætlun hafi náð markmiðum sínum. Þar að auki hljómar það vel í lögunum að byggðaáætlun eigi að innihalda hálfgerða samgönguáætlun líka en við vitum að í veruleikanum er það ekki þannig að innan byggðaáætlunar sé iðnaðarráðherra að kynna t.d. stefnu sjávarútvegsráðherra í sjávarútvegsmálum eða samgönguáætlunina í því plaggi.
Virðulegi forseti. Þess vegna erum við í þessum leiðangri með Sóknaráætlun 20/20. Það er til að ná þeim markmiðum sem að var stefnt (Forseti hringir.) í gegnum byggðaáætlun og koma því þannig fyrir að það virki eins og það átti að gera upphaflega.