bólusetningar barna gegn pneumókokkasýkingum.
Frú forseti. Ég fagna því alveg sérstaklega að hér eru á dagskrá tvær tillögur til þingsályktunar um að fela heilbrigðisráðherra að undirbúa bólusetningu gegn tveimur alvarlegum og algengum sjúkdómum af völdum annars vegar pneumókokka eða lungnabólgubaktería og hins vegar HPV sem er kynsjúkdómur skyldur og tengdur kynfæravörtum.
Ég bendi sérstaklega á hversu vandaðar og ítarlegar greinargerðirnar eru með báðum þessum tillögum og vil leyfa mér, frú forseti, að nefna þær báðar í senn enda þótt við ræðum hér fyrri tillöguna, um bólusetningar barna gegn pneumókokkasýkingum, á þskj. 805.
Þessi tillaga, eins og reyndar hin síðari, byggir á niðurstöðum og skýrslu ráðgjafahóps sem þáverandi heilbrigðisráðherra skipaði og skilaði af sér í október 2008. Eins og hér hefur komið fram hjá 1. flutningsmanni tillögunnar var ráðgjafahópurinn beðinn um að forgangsraða þeim aðgerðum sem til greina koma í skimunum og bólusetningum. Því var síðan skilað í febrúar 2009 og niðurstaðan var sú að lungnabólgubakteríurnar eða pneumókokkasýkingarnar skyldu hafa forgang og fyrst skyldi bólusett við þeim.
Hinn 24. mars sl. svaraði ég hér fyrirspurn frá hv. þm. Steinunni Valdísi Óskarsdóttur sem spurði hvort ég mundi beita mér fyrir aukningu í skimunum og bólusetningu gegn krabbameini. Ég vil endurtaka það sem ég sagði þá: Ég tel að bólusetning og bólusetningar séu besta heilsuvörnin sem völ er á. Þetta er gagnleg, hagkvæm og einföld aðgerð til þess að bæta lífsgæði, til þess að forða þjáningum og dauða og til þess að draga úr kostnaði vegna vinnutaps og útlögðum kostnaði. Þetta er hagkvæm aðgerð sem minnkar lyfjanotkun og dregur úr álagi og innlögnum á heilbrigðisstofnunum.
Sú tillaga sem við ræðum hefur auk þess í för með sér ávinning sem er fólginn í því að við búum hér við, eins og fram hefur komið, eitthvert mesta sýklalyfjaát í okkar heimshluta vegna þess hversu útbreidd eyrnabólga er sérstaklega af völdum lungnabólgubaktería. Um helming af sýklalyfjum til barna má rekja til þess. Fjölónæmir stofnar þessara baktería spretta af þessari miklu sýklalyfjanotkun þannig að bólusetning og minnkandi lyfjanotkun í því skyni hefur þann ávinning líka í för með sér að draga úr fjölónæmum stofnum.
Ég hef fengið nýtt stöðumat núna í vor frá sóttvarnaráði og sóttvarnalækni í þessum málum og niðurstaðan er óbreytt forgangsröðun, að það skuli byrja á bólusetningum gegn lungnabólgubakteríum. Matið er óbreytt að öðru leyti en því að kostnaðurinn hefur að sjálfsögðu hækkað eftir hrunið og er, eins og hv. þm. Siv Friðleifsdóttir nefndi áðan, einhvers staðar á bilinu 125–140 millj. kr. á ársgrundvelli en með því er hægt að bólusetja heilan árgang. Það er bólusett innan við 12 mánaða aldur í þrígang og það fellur mjög vel að almennu ungbarnabólusetningunum.
Ég tel mjög mikilvægt að fylgja ábendingum ráðgjafahóps sem hér hefur verið nefndur og sóttvarnaráðs. Ég mun beita mér fyrir því að hrinda af stað við fyrsta tækifæri bólusetningum gegn pneumókokkum. Hvenær er fyrsta tækifæri, frú forseti? Það er í fjárlögum 2011. Ég tel mjög mikilvægt að á tímum niðurskurðar höfum við skýra framtíðarsýn, við vitum hvert við ætlum að stefna. Við þurfum að horfa til tækifæra sem gefast til sparnaðar til lengri tíma jafnvel þótt það kosti útgjöld fyrst í stað. Við þurfum að fjárfesta í betra heilbrigði þjóðarinnar til frambúðar og ég vil taka undir það sem hv. þingmaður sagði áðan að í þessu efni er til mjög mikils að vinna og ávinningur mælist strax. Á innan við tveimur árum hefur dregið verulega úr eyrnabólgu og öðrum sýkingum þar sem þessi bólusetning hefur verið tekin upp og einnig hefur eftir níu ár í Bandaríkjunum komið fram marktækt fall í dauðsföllum aldraðra af völdum lungnabólgusýkinga, en þar hefur verið bólusett gegn lungnabólgubakteríum í tíu ár.
Ég vænti þess, miðað við hvernig þetta mál er hér upp lagt, með þverpólitískum stuðningi, að hv. heilbrigðisnefnd muni taka þetta mál fyrir hratt og örugglega. Ég vil þakka hv. 1. flutningsmanni og flutningsmönnum öllum þessa vönduðu vinnu og tillögu sem hér liggur fyrir.