138. löggjafarþing — 114. fundur, 28. apr. 2010.
iðnaðarmálagjald.
Virðulegi forseti. Ég ítreka það sem ég sagði áðan, þetta mál verður tekið til rækilegrar skoðunar. Vonandi fáum við niðurstöðu sem allra fyrst í þessu máli. Þau gjöld önnur sem hv. þingmaður nefndi, eins og STEF-gjald, held ég að séu óskyld en engu að síður skal ég beita mér fyrir því að þetta verði allt skoðað í samhengi.