138. löggjafarþing — 114. fundur,  28. apr. 2010.

sameiginlegar reglur fyrir fjármálafyrirtæki.

[12:17]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Frú forseti. Ég skal reyna að læra til verka og ávarpa menn með tilhlýðilegum hætti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Hann á að vísu eftir að svara mér um skipan stjórna og gerir það kannski í sínu seinna svari.

Ég er alveg sammála því að það er ekki hentugt að setja öll fyrirtæki undir þetta ákvæði. Þau þurfa að uppfylla ákveðna stærð og ég miða við að þetta séu fyrirtæki sem að öðru leyti mundu falla ágætlega undir skráningu í opinbera kauphöll. Ég held að það sé mjög mikilvægt að hæstv. ráðherra efnahags- og viðskiptamála tali skýrt og sendi bönkunum skýr skilaboð um það hvernig þeir eiga að höndla þessar eignir til að koma í veg fyrir þá miklu tortryggni sem ríkir svo sannarlega meðal stjórnenda og eigenda fyrirtækja sem eru að berjast í óeðlilegri og ósanngjarnri (Forseti hringir.) samkeppni við fyrirtæki sem núna eru í eigu bankanna.