kostnaður vegna tafa á lausn Icesave-málsins.
Frú forseti. Ég held að þetta svar hæstv. forsætisráðherra við fyrirspurn hv. þingmanns hafi staðfest að það var ekkert að marka fyrri yfirlýsingar hæstv. forsætisráðherra um að skella mundi á efnahagslegur frostavetur ef Icesave-málið yrði ekki leyst strax. Sá efnahagslegi frostavetur er ekki skollinn á, lífið hefur bara haldið áfram. (Gripið fram í.) Endurskoðun á efnahagsáætluninni hefur farið fram en það eina sem hefur gerst á þessum tíma er það að samningsstaða Íslendinga gagnvart Bretum og Hollendingum hefur batnað. Þau tilboð sem Bretar og Hollendingar eru að gera íslensku ríkisstjórninni núna eru 70–100 milljörðum lægri en sá samningur kvað á um sem ríkisstjórnin lagði hér fram og (Forseti hringir.) barðist fyrir þann 1. júní 2009. Og þetta veit (Forseti hringir.) hæstv. utanríkisráðherra.