138. löggjafarþing — 115. fundur,  29. apr. 2010.

störf þingsins.

[10:44]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf):

Hæstv. forseti. Þetta er afar merkileg ræða hjá hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur. Hún spyr mig hvort ég ætli sem formaður fjárlaganefndar að veita fé. Hér sitja 63 sem ráða því.

Af hverju er ekki farið í fangelsismálin? Við samþykktum fjárlög. Þar inni er ekki nýtt fangelsi. Aftur á móti er unnið að því að lífeyrissjóðir geti komið að framkvæmdum og unnið að verkefninu þannig að það komi til viðbótar við fjárlög og utan við fjárlög með þeim reglum sem um það gilda. Það er í ákveðnu ferli og hefur verið upplýst um það áður með svipuðum hætti og lög um sjúkrahúsbyggingu. Sérstök lög hafa verið lögð fram til Alþingis og fjárlagagnefndar. Það verður ákveðið á þinginu í hvaða ferli það fer þannig að ég get ekki svarað fyrir það hvort ég sem þingmaður ætli að veita fé til fangelsismála. Því getur hv. þingmaður eins svarað.

Bæði þau mál sem hér hafa komið upp eru dæmi um gamla drauga, gamlar venjur, gamlar hefðir sem hafa viðgengist hér. Hversu margir milljarðar voru gefnir í kosningaloforðum fyrir kosningarnar árið 2007 af þáverandi ríkisstjórn sem átti að ráðstafa á vegum þingsins? Þá voru meira að segja gerðar undirskriftir af ráðherrum um það hvað ætti að veita í styrki í háskólanum o.s.frv.

Við erum að vinna í að breyta þessu. Það geta þeir staðfest sem eru í fjárlaganefnd. Hv. þm. Ásbjörn Óttarsson veit það vel og við höfum verið sammála um að breyta þessu. Við höfum ætlað að taka á þessum málum. Hv. þm. Pétur H. Blöndal ræðir um Icesave sem hann hefur gert ítrekað. Það var rætt um að það yrði afgreitt um leið og Icesave-lögin yrðu afgreidd. Síðan yrði að breyta fjárlögunum. Það hefðum við hugsanlega getað gert síðla kvölds 30. desember, þá hefðum við getað gengið frá breytingu á fjárlögum. Nú vita menn hvaða örlög þau lög fengu þannig að ég veit ekki hvar hefði átt að setja það inn í fjárlög á þeim sólarhring sem leið frá 30. desember fram á nýtt ár. Um þetta ræddum við á sínum tíma.

Varðandi tónlistarhúsið hefur verið farið með það með svipuðum hætti (Forseti hringir.) og ákveðið var í upphafi, árlegar fjárveitingar í fjárlögum með sama hætti og þar hefur verið. Sú framkvæmd er í ákveðnum farvegi, hefur ítrekað fengið umfjöllun Ríkisendurskoðunar (Forseti hringir.) og þeim reglum er fylgt sem þar er lagt til, reglum sem settar voru af fyrrverandi ríkisstjórn. Pétur H. Blöndal getur þá skýrt út ef ég hef misskilið eitthvað þar.