samgönguáætlun fyrir árin 2009-2012.
Virðulegi forseti. Við ræðum samgönguáætlun fyrir árin 2009–2012. Framlagning hennar hefur dregist af ýmsum orsökum og setur efnahagshrunið óhjákvæmilega sitt mark á hvaða framkvæmdafé er til ráðstöfunar næstu þrjú árin þar sem ríkissjóður glímir við gífurlegan skuldavanda og unnið er að því að ná heildarjöfnuði í ríkisfjármálum árið 2013. Ekki var farið í nein útboð við vegaframkvæmdir á sl. ári en stórar framkvæmdir eins og Bolungarvíkurgöng og Héðinsfjarðargöng voru í gangi og mun þeim ljúka síðar á þessu ári.
Í þessari samgönguáætlun er gert ráð fyrir að fé til vegaframkvæmda á árinu 2011 verði 7,5 milljarðar og 7 milljarðar 2012. Heildarfjármagn til vegamála samkvæmt fjárlögum á árinu 2010 eru tæpir 20 milljarðar og rúmlega 75% fjárins koma frá mörkuðum tekjustofnum, þ.e. bensíngjaldi, olíugjaldi, þungaskatti á bifreiðum yfir 10 tonnum, en aðrar tekjur eru um 10 milljarðar og þar til viðbótar bein framlög úr ríkissjóði.
Vegna erfiðrar fjárhagsstöðu ríkissjóðs hafa verið kannaðir möguleikar á þátttöku lífeyrissjóða og annarra fjárfesta af fjármögnun vegaframkvæmda og annarra fjárfrekra framkvæmda á vegum ríkisins. Þar hafa verið nefnd verkefni eins og Suðurlandsvegur og Vesturlandsvegur, framkvæmdir sem standa undir arðsemiskröfum lífeyrissjóðanna. Í þessu samhengi hafa verið til skoðunar hugmyndir um veggjöld sem á eftir að útfæra og skoða frá öllum hliðum, hvaða áhrif þau mundu t.d. hafa á aðrar vegaframkvæmdir, hvort ríkið gæti þá sett aukið fjármagn í önnur verkefni sem setið hafa eftir víða úti á landi og uppfylla ekki arðsemiskröfur lífeyrissjóðanna ef þátttaka þeirra við framkvæmdirnar gengur eftir.
Annað sem nefnt hefur verið er að tæknin muni fljótlega bjóða upp á búnað í ökutækjum sem mæli notkun viðkomandi ökutækis á umferðarmannvirkjum og megi nýta við gjaldtöku af umferðinni. Ef þessir möguleikar verða til skoðunar tel ég að þær mörkuðu tekjur sem Vegagerðin hefur samkvæmt lögum nú muni verða endurskoðaðar og ekki komi til greina að viðhalda hvoru tveggja.
Í samgönguáætluninni eru mörg mikilvæg markmið sem stuðla að öryggi, betri nýtingu fjármagns, jákvæðri byggðaþróun, umhverfisþáttum og auknum hlut almenningssamgangna. Kem ég inn á nokkur atriði í því sambandi.
Gera á úttekt á því hvort koma megi á strandsiglingum að nýju með það að markmiði að draga úr álagi á vegakerfið. Ég tel mjög brýnt að kannað sé til þrautar hvort þetta sé raunhæfur möguleiki því að strandsiglingar kæmu til með að styrkja víða atvinnu og búsetu á landsbyggðinni. Leita verður ódýrari leiða til að leggja bundið slitlag á umferðarlitla vegi. Ein af þeim leiðum sem við höfum til að nýta sem best það fjármagn sem er til skiptanna er að geta tekið fyrir lengri vegarkafla með bundnu slitlagi þó að burðarþolið sé ekki það sama og á þjóðvegum landsins. Auknar kröfur verða gerðar til opinberra stofnana og fyrirtækja um að nota vistvæn ökutæki í starfsemi sinni. Nauðsynlegt er að opinberir aðilar sýni þar gott fordæmi og skattlagning ökutækja taki mið af orkunotkun og hversu umhverfisvæn þau eru.
Aukið umferðaröryggi hefur mikið verið til umfjöllunar við gerð umferðarmannvirkja og gert er ráð fyrir að sérstök aðgerðaráætlun verði gerð á öllum sviðum samgangna til að draga úr líkum á alvarlegum slysum.
Eitt markmiðið er að horft verði til mikilvægis einstakra framkvæmda sem hvata til að skapa heildstætt atvinnu-, búsetu- og þjónustusvæði. Þetta markmið í samgönguáætlun skiptir miklu máli þegar horft er til þeirra landshluta sem eru enn langt á eftir í samgöngumálum. Vil ég t.d. nefna Vestfirðingafjórðung sem er í raun þrjú samgöngusvæði og samgöngulaus innbyrðis stóran hluta ársins, en þá er ég að tala um vegi á sunnanverðum Vestfjörðum og tengingu við norðanverða Vestfirði með jarðgöngum og samgöngur á norðanverðum Ströndum. Á þessum svæðum er fyrir langalöngu orðið tímabært að fara í framkvæmdir en stjórnvöld liðinna ára hafa látið þessar brýnu samgöngubætur mæta afgangi allt of lengi.
Síðan eins og allir vita hrynur efnahagskerfi landsins með þekktum afleiðingum þegar loksins var farið að hilla undir að komið væri að þeim svæðum landsins sem látin hafa verið mæta afgangi. Nú stöndum við frammi fyrir þeim kalda veruleika að ekki verður fram hjá því horft að forgangsraða verkefnum innan kjördæma fyrir það fé sem er til skiptanna næstu tvö árin. Það verður gert í samvinnu við fulltrúa landshlutasamtakanna. Þau verkefni sem koma til með að færast aftur í áætlun vegna efnahagshrunsins verða á 12 ára samgönguáætlun og styttri fjögurra ára áætlun sem liggur fyrir í haust. Í þeim samgönguáætlunum verður að setja í forgang þau svæði á landsbyggðinni sem allir ættu að geta verið sammála um að rjúfa þurfi samgöngueinangrun með heilsárssamgöngum byggða.
Næstu tvö árin mun samdrátturinn verða erfiður á öllum sviðum. Það verður að vera samstaða meðal þjóðarinnar um að forgangsraða á öllum sviðum samfélagsins. Samgöngunefnd mun fá þessa þingsályktunartillögu til umfjöllunar og fara í einstaka þætti hennar og vænti ég góðrar umræðu í nefndinni um þennan mikilvæga málaflokk.