138. löggjafarþing — 115. fundur, 29. apr. 2010.
samgönguáætlun fyrir árin 2009-2012.
582. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og get tekið undir með henni að við munum vinna að samgöngumálum fyrir Vestfirði og landið allt í samgöngunefnd og beita okkur af þeim krafti sem við höfum og er sammála henni um að þó að vegakerfið sé stórt á Vestfjörðum þá er það ekki alveg svona stórt. En hver veit hvað það verður stórt í framtíðinni?