138. löggjafarþing — 115. fundur,  29. apr. 2010.

samgönguáætlun fyrir árin 2009-2012.

582. mál
[13:44]
Horfa

Ragnheiður Ríkharðsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er aðeins ein spurning sem mig langar að beina til hv. þm. Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur. Hún ræddi um mælitæki í bíla þannig að hver og einn bíleigandi mundi þá samkvæmt því tæki greiða miðað við hvert og hvernig hann æki. Ég spyr hv. þingmann hvort hún telji slíkt samræmast persónuvernd einstaklinga.