samgönguáætlun fyrir árin 2009-2012.
Virðulegur forseti. Hér er til umræðu tillaga til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun. Mundu margir segja að tími væri til kominn að ræða þessi mál, enda hefur hefðbundinn framgangur í samgönguframkvæmdum þjóðarinnar frestast töluvert vegna ástæðna sem eru okkur öllum kunnugar.
Ég fagna sérstaklega framsetningunni á samgönguáætluninni og hrósa ráðuneyti samgangna fyrir hana. Í henni er það nýmæli að finna, eftir því sem ég kemst næst, að sérstakar myndir eru af fyrirhuguðum framkvæmdum og öll framsetning er skýr og góð fyrir almenning, enda skiptir það mjög miklu máli.
Það eru margvíslegar og mjög mikilvægar framkvæmdir sem eru tíndar til. Margar af þeim eru jafnframt okkur vel kunnugar. En ég vil fá að koma inn á sjónarmið sem mér finnst skipta mestu máli í framsetningu og niðurröðun á framkvæmdunum. Það er að þetta séu virðisaukandi framkvæmdir fyrir byggðarlögin sem um ræðir. Þá er ég að tala um í margvíslegum skilningi þess orðs, að þær lækki t.d. kostnað fyrirtækja og atvinnulífs og tengi saman byggðir og skapi þannig möguleika á nýsköpun í atvinnumálum, jafnframt að þær auki öryggi vegfarenda. Það er að mínu mati ákaflega mikilvægur þáttur í niðurröðuninni. Þá þurfa menn auðvitað að horfa til umferðarmagns og tíðni meðalársumferðar o.s.frv.
Ég vil nefna nokkrar framkvæmdir í áætluninni sem heyra til kjördæmis míns. Til að mynda hina gríðarlega mikilvægu Landeyjahöfn sem er komin vel á veg þó að útlit sé fyrir að notkun hennar frestist um eina, tvær eða þrjár vikur vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Sú framkvæmd kemur til með að boða byltingu í samgöngumálum Eyjamanna og í rauninni svæðisins alls austan Þjórsár og á Suðurlandinu öllu. Þá er jafnframt í áætluninni fyrsti áfangi í tvöföldun Suðurlandsvegar, hinn svokallaði Lögbergsbrekkukafli vestan Litlu kaffistofunnar. Hann er þegar kominn á framkvæmdastig og er gríðarlega mikilvægt verkefni sem ber að fagna. Jafnframt er það Suðurstrandarvegur sem er samgönguframkvæmd af þeirri tegund sem ég lýsti í upphafi míns máls, mjög virðisaukandi. Hann tengir saman atvinnusvæði og skiptir mjög miklu máli fyrir Suðurkjördæmi allt í heild sinni vegna þess að þar verður til mikilvæg vegtenging á milli Þorlákshafnar og Grindavíkur. Af sama toga er brúin yfir Hvítá sem hefur mikla þýðingu fyrir ferðamannaiðnaðinn, og Lyngdalsheiðarvegur sem verður kláraður í ár.
Það sem vantar hins vegar og hefði þurft að vera komið á betri rekspöl, er ný brú yfir Hornafjarðarfljót og ný veglína að Höfn. Þessu þurfum við sérstaklega að halda til haga þegar við förum að vinna næstu áætlun. Á árinu 2008, þegar ég var í samgönguráðuneytinu og starfaði þar sem aðstoðarmaður samgönguráðherra, vorum við nánast komin á framkvæmdastig og með fjármagn í þá framkvæmd. Hún frestaðist því miður vegna þess að ekki var samstaða um þá veglínu sem fara átti innan sveitar. Ég vil líka geta þess að í samgönguáætlun núna er brýnt mál, sem hefur ekki verið mikið fjallað um, en það eru sjóvarnir við Vík í Mýrdal, 113 millj. á þessu ári og 98 millj. á því næsta í sjóvörn vestan Víkurár.
Ég vil koma aðeins inn á umræðuna um svokölluð veggjöld eða umferðargjöld en ég tel að það sé mikilvægt mál sem þinginu ber að hugsa svolítið til framtíðar. Það er mín skoðun að framtíðarfjármögnun framkvæmda í samgöngumálum verði að bera uppi með slíkum gjöldum að einhverju leyti. Ég sé fyrir mér samræmt kerfi þar sem vegakerfið er flokkað eftir samgöngumannvirkjum og t.d. að eitt samræmt jarðgangagjald gildi fyrir allt landið. Þannig er ákveðið samræmi, burt séð frá búsetu fólks. Þá kostar einfaldlega þetta mikið að keyra í gegnum jarðgöng á Íslandi. Það mætti að sama skapi setja upp sérstakt gjald fyrir akstur um veg með aðskildum akstursstefnum og menn gætu nýtt sér slíkt kerfi til að innheimta t.d. bílastæðagjöld og innheimta sérstaklega fyrir akstur innan miðbæjarkjarna sem oft er of mikill og ástæða er til að stýra eins og við þekkjum dæmi um. Þetta getur haft margvíslegan sparnað í för með sér fyrir sveitarfélög vegna þess að með svona kerfi er ekki þörf fyrir sérstakan bílastæðasjóð eða að rukkað sé sérstaklega eftir gjaldmælum.
Í svona kerfi eru fólgnir möguleikar á margháttaðri stýringu t.d. með því að hafa lægra gjald á minni álagstímum þannig að ódýrara sé t.d. að aka um á nóttunni. Hægt væri að stilla gjaldtökuna eftir tíðni en það fæli í sér ákveðinn byggðastyrk fyrir íbúa. Þeir sem ækju mest greiddu hlutfallslega minnst fyrir notkun mannvirkisins. Það er líka hægt að skipta gjaldinu eftir því hversu vistvænt ökutækið er eða eldsneytið sem það nýtir sér eftir tegund og þyngd.
Vegna umræðunnar um mikilvægi persónuverndar í þessum efnum þá er hún auðvitað gríðarlega mikilvæg. En upplýsingar um daglegt líf okkar eru dulkóðaðar með svo margvíslegum hætti að það er ekkert frábrugðið þeim upplýsingum sem þarna eru á ferðinni. Við skiljum á hverjum degi eftir okkur rafræna slóð hvort sem er með notkun GSM-síma, vísakorts eða með akstri á vegum þar sem eru umferðarmyndavélar. Mjög víða eru slíkar myndavélar án þess að menn hafi sérstakar áhyggjur af því hvað verði um þær upplýsingar. Með einfaldri dulkóðun og lagasetningu er hægt að geyma slíkar upplýsingar með mjög öruggum hætti, nákvæmlega eins og gert er með upplýsingar sem eru innifaldar í GSM-símkerfinu og með notkun okkar á tölvum, vísakortum, debetkortum o.s.frv. Það mikilvæga að mínu mati er að með þessu er hægt að innheimta gjöld fyrir notkun á vegakerfinu með miklu sanngjarnari hætti en nú er gert með eldsneytisgjöldum, vegna þeirra kosta sem það hefur í för með sér til að stýra notkun á samgöngumannvirkjum. Ég sé fyrir mér að þetta kæmi í staðinn fyrir eldsneytisgjöldin sem eru að mörgu leyti orðin úrelt vegna nýrrar tækni og nýrra eldsneytisgjafa sem eiga eftir að ryðja sér til rúms í síauknum mæli.
Ég vil segja í lokin að þó að menn ræði auðvitað þessi mál út frá kjördæmaskiptingu og sínu kjördæmi þá eru framkvæmdirnar sem hér um ræðir ekki endilega bundnar við stök kjördæmi og það er mikilvægt að ræða þær þannig. Vesturlandsvegur og Suðurlandsvegur eru ekki einkamál kjördæmanna sem þeir liggja um, heldur eru þeir hagsmunamál allrar þjóðarinnar.