138. löggjafarþing — 115. fundur,  29. apr. 2010.

samgönguáætlun fyrir árin 2009-2012.

582. mál
[15:09]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ekki er hægt að halda því fram með nokkurri sanngirni að í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins hafi ekki verið framkvæmt í vegamálum. Það mætti halda að hæstv. samgönguráðherra hafi ekki keyrt um landið sitt nýlega, sem ég veit nú að hann hefur gert.

Ég var spurð um stefnubreytingu Sjálfstæðisflokksins. Þá spyr ég: Fyrst hæstv. samgönguráðherra spurði ítrekað fjármálaráðherra og aðra sjálfstæðismenn að þessu í þeirra tíð, af hverju í ósköpunum bætir hann ekki þá fyrir það sem hann honum hefur greinilega fundist hrópleg ósanngirni í því svari sem hann fékk þá og tekur af skarið sem (Samgrh.: Tölurnar tala sínu máli.) samgönguráðherra og tekur til sín það sem honum finnst hann eiga?

Ég mundi líka vilja varpa annarri spurningu til hæstv. samgönguráðherra og hún er sú: Með þessum nýju hugmyndum um gjaldtöku, hvort sem það er eftir GPS-kerfinu eða með vegtollum, ætlar hæstv. samgönguráðherra að afnema þá skatta sem við erum með núna eða á þetta að vera hrein viðbót? Ég held að hæstv. samgönguráðherra verði að tala mjög skýrt í þeim efnum vegna þess að það væri eftir verklagi núverandi ríkisstjórnar að ætla að bæta þessu ofan á og koma með nýja skatta sem mér finnst alls ekki í boði ofan á allt annað hérna.

Varðandi hvernig hægt er að framkvæma þetta. Það er annar möguleiki sem ég hef ekki nefnt hér og datt í hug þegar hæstv. heilbrigðisráðherra ræddi um kostnað heilbrigðiskerfisins og annað. Tryggingafélögin hafa á umliðnum árum lýst sig reiðubúin til að koma að fjármögnun einstakra verkefna, og vegna hvers? Jú, af því að þau sjá sér hag í því að með (Forseti hringir.) bættum samgöngum, með bættum vegum dragi úr (Forseti hringir.) útgjöldum þeirra. Talað hefur verið um að á Suðurlandsvegi einum (Forseti hringir.) mundi tvöföldun spara 500 milljónir árlega til tryggingafélaga.