samgönguáætlun fyrir árin 2009-2012.
Virðulegi forseti. Ég fagna mörgu sem komið hefur fram í ræðu hæstv. samgönguráðherra. Ég vil þó byrja á því að hvetja hann til þess og skora á hann að drífa í því að setja lög varðandi lagningu vega á suðurfjörðum Vestfjarða og ljúka því á vordögum, drífa í því, það er ekki eftir neinu að bíða. Þorri íbúa er sammála því, óskar eftir því og bíður eftir því og það er mikilvægt að samgönguráðherra eigi frumkvæði í þeim efnum.
Ég fagna því líka að hæstv. ráðherra hefur staðfest að það sé kristaltært að Suðurstrandarvegur, lokaútboð, verður á haustdögum á árinu 2010.
Það eru nokkur atriði sem ég vil árétta sem ég spurði um í ræðu minni í dag til hæstv. ráðherra. Ég spurði um tímasetningu á smíði nýrrar Eyjaferju á Landeyjahöfn sem ég tel mikilvægt að tekin verði ákvörðun um ekki seinna en í árslok 2011. Þá er rúmt ár liðið frá því að siglingar hefjast, 15 eða 16 mánuðir, og það á að vera nógur tími til að meta stöðu og taka ákvörðun. Það er mikilvægt að taka ákvörðun og hafa tímamörk og ég vil óska eftir því að samgönguráðherra staðfesti það hér í þingsal.
Mig langar líka að spyrja hæstv. ráðherra um tímasetningu á Hornafjarðarfljóti, um það sem ég spurði um varðandi Svínahraunið og breikkun á 1+2 þar sem það er lífsnauðsynlegt. Ég spurði líka um smábátaaðstöðuna í Landeyjahöfn og svo spurði ég um stóru verkin, Sundabraut og Kringlumýrarbraut, sem eru mjög mikilvæg verkefni hér á höfuðborgarsvæðinu og fyrir landið allt.