138. löggjafarþing — 115. fundur,  29. apr. 2010.

stjórn fiskveiða.

370. mál
[17:48]
Horfa

Atli Gíslason (Vg):

Frú forseti. Það er mikið gleðiefni að nú hillir undir að þetta frumvarp verði að lögum og ég hygg að a.m.k. 70% þjóðarinnar taki undir í þeirri gleði og þeim fögnuði. Ég verð í upphafi ræðu minnar að minna á markmið fiskveiðistjórnarkerfisins samkvæmt 1. gr. laga um stjórn fiskveiða. Markmiðið er að stuðla að verndun og hagkvæmni á nýtingu fiskstofna og tryggja með því — ég legg áherslu á það — trausta atvinnu og byggð í landinu. Auðvitað í landinu öllu.

Þessi markmið um að treysta byggð í landinu hafa nánast frá því lögin voru sett snúist upp í andhverfu sína. Mikil og stöðug samþjöppun hefur orðið í greininni og mörg byggðarlög hafa farið skelfilega út úr þeirri samþjöppun og mörgum verðmætum öðrum hefur verið fórnað á minni stöðum sem hafa misst frá sér aflahlutdeildir. Einn versti gallinn á þessu fiskveiðistjórnarkerfi er að það sem ég vil nefna „frumbyggja-“ eða „frumburðarrétt fólks“ vantar, þ.e. að einstaklingar geti stundað veiðar út frá sinni heimabyggð. Það er alþekkt í þeim löndum sem við berum okkur saman við, t.d. í Færeyjum og Noregi. Þar er þessi frumbyggjaréttur ef ég get orðað það svo eða frumburðarréttur tryggður, rétturinn að geta stundað strandveiðar frá eigin strönd þótt ekki sé í lengri tíma en frá maí til september.

Ég fullyrði að ef samfélagsleg áhrif þessarar aðgerðar eru skoðuð og Háskólasetur Vestfjarða hefur tekið undir það þá eru þau mjög góð. Ef maður metur það heildstætt út frá samfélagsáhrifum og öðru þá held ég að hagkvæmnin sé mikil. Frumvarpið stefnir að því að nýta mannauð í smærri sjávarbyggðum, tæki og tól sem þar eru til staðar, atvinnu- og íbúðarhúsnæði og þar fram eftir götunum. Ef allt þetta er tekið saman í mati á samfélagsáhrifum þá er þetta stór dagur fyrir minni sjávarbyggðir í landinu.

Með stífum hagkvæmnisrökum er hægt að halda því fram að ekki þurfi nema tvær til fimm útgerðir og vinnslur til að draga á land þann afla sem heimilt er á hverju ári. Það veldur mér því vonbrigðum að heyra lítið jákvætt um þær breytingar sem hér er verið að gera og ríma við tvö eða þrjú meginmarkmið fiskveiðistjórnarlaganna. Ég ítreka að 70% þjóðarinnar styðja þetta.

Við eigum að standa vörð eins og gert er í frumvarpinu um fjölbreytta útgerð í landinu, frá einyrkjum til smárra útgerða, millistórra og stórra. Allir eiga rétt á að blómstra í þessari flóru og að því er stefnt í þessu frumvarpi.

Hér hefur svæðaskiptingin verið gagnrýnd. Fulltrúar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins hafa komið í tvígang á fund nefndarinnar, það var ítarlega rætt. Auk þess hefur sjávarútvegsráðherra komið á fund nefndarinnar og lýst því yfir að svæðaskipting verði sambærileg eða svipuð.

Ég vil taka það fram að Háskólasetur Vestfjarða taldi reynsluna af þessu í fyrra góða en vel að merkja var veiðin stunduð í mjög takmarkaðan tíma, hálfan júlí og ágúst. Eftir sumarið í sumar mun koma á þetta reynsla og ég hygg þarft verk að fela Háskólasetri Vestfjarða að gera aðra úttekt. Komi vankantar fram á þessu fyrirkomulagi er eðlilegt að sníða þá af og gera úttekt m.a. á hagkvæmninni út frá breiðum samfélagslegum vinkli en ekki út frá vinkli einstakra fyrirtækja og taka til greina fleiri hagsmuni en þrönga hagsmuni einstakra útgerða og áhrif á smærri sjávarbyggðir á stöðum um allt land þar sem kviknaði mikið líf og mikil gleði síðastliðið sumar.

Spurt er hvort eigi að gera landið að einu veiðisvæði. Ég er ekki ósammála því vegna þess að við það fer byggðahugsunin út úr frumvarpinu, þ.e. að veiðin þjappist ekki saman á eitt svæði og aðrir landshlutar fari á mis við hana, menn fari með bátana sína þar sem gjöfulustu miðin eru og aðrir landshlutar fari á mis við þau. Það er ekki í anda tilgangs laganna um dreifða veiði og að allar sjávarbyggðir njóti góðs af frumvarpinu.

Líka er spurt hvort eigi að fella út 2. gr. og taka hana, þ.e. strandveiðihlutfallið, út fyrir sviga. Það er hálfgerð tátólógía því að aflaákvarðanir Hafrannsóknarstofnunar hljóta að taka tillit til alls afla sem er veiddur hvort sem er í aflamarki, afla útlendinga úr viðkomandi fiskstofni, áframeldiskvóta, afla vegna ívilnana eða afla vegna rannsóknarleiðangra. Þessu hefur ekki verið fylgt eftir og þess vegna er brýnt að það sé gert og það sé metið heildstætt þannig að trúverðugleiki okkar í fiskveiðistjórnarkerfinu sé sem mestur, ekki síst erlendis sem skiptir verulega miklu máli. Ég hygg að einn þátturinn í því að okkur hefur gengið seinna en ella að byggja upp þorskstofninn sé að ekki hafi verið tekið nógsamlegt tillit til þessa auk þess sem margsinnis hefur verið farið út fyrir ráðgjöf, það er frekar regla en undantekning. Við fetum sömu braut og Færeyingar og Norðmenn. 70% þjóðarinnar munu fagna því.

Ég vil að lokum þakka meðnefndarmönnum mínum í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd fyrir málefnalegt samstarf að þessu máli. Þó að við höfum í einstökum atriðum verið sátt við mjög margt sem þarna kemur fram vildi ég gjarnan hafa heyrt meira af jákvæðum þáttum og að menn legðu meiri áherslu á að vera jákvæðir í málflutningi sínum gagnvart frumvarpinu en að finna því flest til foráttu.