138. löggjafarþing — 115. fundur,  29. apr. 2010.

lögskráning sjómanna.

244. mál
[18:14]
Horfa

Frsm. meiri hluta samgn. (Björn Valur Gíslason) (Vg):

Hæstv. forseti. Samgöngunefnd hefur fjallað um frumvarp til laga um lögskráningu sjómanna eftir 2. umr. hér á Alþingi og leggur til eftirfarandi breytingartillögu á frumvarpinu:

Í fyrsta lagi að við 11. gr. bætist tveir nýir stafliðir, svohljóðandi: a. Í stað orðanna „skv. 4. og 5. gr. laga nr. 43/1987, um lögskráningu sjómanna“ í 2. málsl. 4. mgr. B-liðar 67. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, kemur: skv. 4. gr. laga um lögskráningu sjómanna.

Í öðru lagi að í stað orðanna „lög um lögskráningu sjómanna, nr. 43/1987“ í 2. málsl. 3. mgr. 3. gr. a laga um Siglingastofnun Íslands, nr. 6/1996, kemur: lög um lögskráningu sjómanna.

Að öðru leyti hefur nefndin fjallað um þetta mál út frá því sjónarhorni að verði þetta frumvarp að lögum verði meginbreytingin á lögskráningu sjómanna sú að gert verður skylt að lögskrá á öll skip og báta undir 20 tonnum en bátar undir 20 tonnum hafa verið undanskildir lögskráningu fram til þessa. Þetta hefur í för með sér að þeim bátum sem skylt er að lögskrá á mun fjölga um mörg hundruð og jafnvel hátt í þúsund, sem mun væntanlega hafa í för með sér að það mun ganga frekar rólega fyrir sig að koma þeim öllum inn í þetta kerfi.

Í öðru lagi eru mörg hundruð sjómenn á þessum bátum sem þurfa að uppfylla ýmis skilyrði til að fá lögskráningu, þar á meðal að hafa sótt öryggisfræðslunámskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna. Það er alveg ljóst að mínu mati og okkar í samgöngunefnd að það mun ekki nást að uppfylla eða koma öllum þeim sjómönnum í gegnum þennan skóla á þeim tíma sem fram undan er þar til lögin taka gildi, sem á að gerast 1. nóvember 2010.

Nefndin hefur því rætt þetta nokkuð og beinir því til samgönguráðherra að haga reglugerðarsetningu í framhaldi af þessari lagasetningu, í tengslum við þessa lagasetningu, með þeim hætti að bátum undir 20 tonnum og sjómönnum á þeim verði veittur nægur frestur til að uppfylla þau skilyrði sem þarf til að fá lögskráningu. Í 7. gr. frumvarpsins er ráðherra veitt reglugerðarheimild til að haga málum nánast með hvaða hætti sem er við útfærslu á þessum atriðum, þ.e. varðandi nánari framkvæmd á lögskráningu og skilyrðum hennar um öryggisfræðslu sjómanna og framkvæmd eftirlits lögskráningar og fleira í þeim dúr.

Ég hef rætt þetta við ráðherra fyrir hönd nefndarinnar og verið fullvissaður um það að ráðherra mun beita reglugerð við þetta frumvarp með þeim hætti að útgerðum þessara skipa verði veitt nægilegt svigrúm til að koma sér upp búnaði til lögskráningar og sjómönnum tími til að sækja öryggisfræðslu hjá Slysavarnaskóla sjómanna. Það er okkar álit að þessi frestur þurfi að vera a.m.k. út næsta ár, til 1. janúar 2012, og um það hefur verið rætt við ráðherra og á það fallist af hans hálfu að fresturinn verði nægur dugi sá tími ekki.