138. löggjafarþing — 115. fundur,  29. apr. 2010.

veiðieftirlitsgjald.

371. mál
[18:38]
Horfa

Frsm. meiri hluta sjútv.- og landbn. (Atli Gíslason) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Einari K. Guðfinnssyni fyrir svarið. „Alvarlegar athugasemdir“ er fulldjúpt í árinni tekið, hv. þingmaður. Það stendur í umsögninni, „gæti raskað“. Ég geri skilsmun á því.

Hv. þingmaður vill ekki setja fram neinar tilgátur um þessi ummæli en hann gerir þau samt að sínum. Mér finnst að hv. þingmaður ætti að segja skoðun sína á því hvort þetta sé rangt eða rétt. Telji hann þetta rétt á hann að færa fyrir því rök.

Ég vil að lokum segja, að gefnu tilefni, að frumvarpið um strandveiðar og frumvarp um veiðieftirlitsgjald sem við ræðum nú um, voru bæði tekin fyrir í ríkisstjórn og samþykkt þar, einnig af hæstv. fjármálaráðherra.