138. löggjafarþing — 115. fundur,  29. apr. 2010.

veiðieftirlitsgjald.

371. mál
[18:39]
Horfa

Frsm. minni hluta sjútv.- og landbn. (Einar K. Guðfinnsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Orð fjármálaráðuneytisins standa auðvitað fyrir sínu. Þau eru mjög afdráttarlaus, sagt er að það gæti raskað samkeppnisgrundvelli hafna. Við vitum að ráðuneyti eru sjaldnast mjög stórorð í umsögnum, a.m.k. ekki um mál hvert annars, þannig að ég tel að þarna falli dálítið stór orð.

Ég get hins vegar tekið undir með hv. þm. Atla Gíslasyni um það, ég hef svo sem ekki stórar áhyggjur af því að það raski miklu varðandi samkeppnisgrundvöll, þótt höfnin heima hjá mér í Bolungarvík fái eina og hálfa milljón eða þar um bil í viðbótartekjustofn út af þessu. Ég veit að bæjarstjórinn í Bolungarvík, sem ég þekki nú býsna vel, mun fagna því. Ég segi því ekki að þetta sé stóra málið í þessu.

Það sem ég vek hins vegar athygli á er þetta: Þetta er mjög undarleg skattlagning. Hún er algjört nýmæli varðandi hafnirnar. Þetta er sértæk skattlagning á strandveiðiflotann, þetta er strandveiðiskattur eins og við vekjum athygli á, og er ekki í samræmi við hafnalögin að neinu leyti.

Nú má alltaf hugsa sér að slík skattheimta yrði með einhverjum öðrum hætti. Það mætti hugsa sér að loðnuflotinn t.d. borgaði sérstakt veiðigjald sem rynni til hafna þar sem miklu væri landað af loðnu eða t.d. að þeir sem veiddu mikinn þorsk borguðu sérstakt þorskveiðieftirlitsgjald, sem gæti runnið til hafnanna. Auðvitað lenda menn í tómri vitleysu ef þetta prinsipp sem hér er fitjað upp á, yrði útfært og gert að hinni almennu reglu. Þetta undirstrikar hversu illa hugsað málið var. Það er ástæða til að þakka efnahags- og skattanefnd fyrir að fara svona vel yfir málið. Ég harma hins vegar að ekki skuli hafa verið tekið tillit til þeirra málefnalegu sjónarmiða sem þar komu fram.