138. löggjafarþing — 116. fundur,  30. apr. 2010.

reglugerð um strandveiðar.

[13:21]
Horfa

Ólína Þorvarðardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég furða mig á þessari umræðu hér, að hún skuli koma fram með þessum hætti undir Fundarstjórn forseta og hún skuli fá að fara hér fram með þessum hætti. Ég spyr: Er það til siðs að reglugerðir séu kynntar (Gripið fram í: Já.) þingheimi áður en lög eru sett á hinu háa Alþingi?