138. löggjafarþing — 117. fundur,  30. apr. 2010.

veiðieftirlitsgjald.

371. mál
[13:54]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Þetta frumvarp er fylgifiskur strandveiðifrumvarpsins Við framsóknarmenn munum sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu. Við viljum sýna það í verki að við viljum ekki standa í vegi fyrir þessum veiðum, en við hefðum kosið að bæði strandveiðifrumvarpið og eins þessi fylgifiskur hefði verið betur unninn.