geislavarnir.
Frú forseti. Varðandi merkingarnar vísa ég í athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins. Í a-lið er talað um merkingar á viðkomandi stað á tækjunum sjálfum og þar getur hæstv. ráðherra séð hvað ég var að vísa í.
Ljósabekkjalöggan verður sem sagt fjármögnuð með skattahækkunum, það er það sem hæstv. ráðherra sagði. Væntanlega fylgir þessu þó nokkurt eftirlit og þarf að hækka þetta gjald þannig að verið er að auka álögur á atvinnulífið í landinu sem er einmitt það sem við þurfum á að halda núna, eða hitt þá heldur.
Ég skil ekki alveg hvernig þessu eftirliti verður fylgt eftir. Ég skil vel að það er hægt að biðja um nafnskírteini, það er hægt að setja einhver skilyrði um það, en við vitum að ekki er hægt að fara inn á hverja einustu ljósastofu og passa upp á að þessi lög verði ekki brotin. Það er kannski bara ef við sjáum allt í einu árganga af sólbrúnum unglingum að þá gætum við gert ráð fyrir að þau hafi öll lagst í ólöglegan ljósabekk. En mér finnst það kjánalegt að ætla að gera þetta svona. Þetta tekur ábyrgðina af uppeldinu frá okkur sem eigum að sinna því og gerir okkur stikkfrí en á sama tíma er ekkert hægt að ganga úr skugga um að þetta virki almennilega. Ég er í prinsippinu ekki hlynnt því að setja lög sem ekki er hægt að framfylgja almennilega.
Ég minnist þess nú þegar ég var sjálf í barnaskóla og man ekki betur en okkur hafi öllum verið skellt inn í lítið herbergi, skellt á okkur gleraugum og kveikt á einhverjum ógnarstórum lampa til þess að gefa okkur yl í kroppinn og einhver þau vítamín sem talið var að okkur skorti. En (Forseti hringir.) svona eru vísindin, þau koma með nýjar upplýsingar.