138. löggjafarþing — 117. fundur,  30. apr. 2010.

geislavarnir.

543. mál
[14:58]
Horfa

Siv Friðleifsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, sem hafa tekið þátt í þessari umræðu, séu komnir í öngstræti með rök sín, þessir hv. þingmenn og kannski Sjálfstæðisflokkurinn í heild. Ég hef ekki tekið eftir því að menn hafi beitt sér fyrir því að afnema lög um bílbeltanotkun, afnema lög um að bannað sé fyrir börn og unglinga að reykja og drekka áfengi, af því að það sé flokkað sem forræðishyggja. Það kom fram í máli hv. þingmanns að hún ætlar ekki að styðja frumvarpið sem hér liggur fyrir af því að það er forræðishyggja og hún færði rök fyrir því hér áðan að hitt er jafnmikil forræðishyggja, þ.e. bílbeltin, áfengið og tóbakið. Hún sagði: Ég mundi nú setja mitt barn í bílbelti þó að það stæði ekki í lögum. Hvað með það? Þetta er í lögum í dag og á sama hátt ætlum við að setja þetta í lög til að vernda börn okkar og unglinga fyrir skaðlegum geislum. Þá spyr ég aftur: Hver er munurinn á þessu? Hver er munurinn á því að hafa í lögum bann vegna ákveðinnar áhættu, lög um reykingar, áfengi, bílbelti o.s.frv. og svo að sætta sig við þau lög sem til staðar eru? Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur að sætta sig við þau lög sem til staðar eru, hann beitir sér ekki gegn þeim. Af hverju er ekki líka hægt að setja þetta í lög? Þetta er sama eðlis. Það er hættulegt búið að sanna að þetta er upp að vissu marki (Forseti hringir.) eins og hitt og þess vegna ætlum við að koma í veg fyrir að börnin okkar lendi í þessu.