138. löggjafarþing — 117. fundur,  30. apr. 2010.

geislavarnir.

543. mál
[15:00]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég get glatt hv. þingmann með því að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki í öngstræti í þessu máli, en ég tek það fram að mér finnst Framsóknarflokkurinn vera kominn í öngstræti. Hér hafa tveir fulltrúar Framsóknarflokksins talað algjörlega hvor í sína áttina í þessu máli, þannig að ef einhvers staðar er um öngstræti að ræða þá held ég að hv. þingmaður ætti að líta í eigin barm. Mér finnst þetta vera hártoganir af verstu sort hjá hv. þingmanni. Af hverju má ekki banna ljósabekki á sama hátt og banna má fólki að keyra óbundið í bíl?

Ég spyr hv. þingmann á móti: Af hverju má leyfa sólböð undir 18 ára aldri? Af hverju ekki að ganga alla leið og hafa sólbaðsvakt í sundlaugunum og aldurstakmark? (SF: Það er ekki hægt að framfylgja því.) Það er ekki hægt að framfylgja því, segir hv. þingmaður, (Gripið fram í.) það er nefnilega málið. Ég var að benda á, að það er ekki heldur hægt að framfylgja þessu. (SF: Það er mjög auðvelt.) Hv. þingmaður talaði um að þetta væri atvinnumál og varðaði atvinnufrelsi. Ég ræddi þetta ekki út frá þeim — (Gripið fram í.) hv. þingmaður gerði það. Hann gerir samt á sama tíma mikið úr heilbrigðissjónarmiðum. Ef horft er til heilbrigðissjónarmiða, sem ég tel að hv. þingmaður tali mikið fyrir, og rannsóknanna sem þingmaðurinn grípur til, þá spyr ég: Hvað með sólarbekkina í heimahúsum? Það er alveg jafnskaðlegt. Maður nær ekki að halda utan um hættuna með því að banna þetta, ég vildi benda á það. Í því erum ég og hv. þingmaður alls ekki sammála. (Gripið fram í.) Ég sé fyrir mér í framtíðinni ef hv. þingmaður fengi að ráða, að þá væri bannað að vera úti í sól nema með barðastóran hatt. Þetta er komið út í (Forseti hringir.) hreina vitleysu, ég vildi benda á það.