138. löggjafarþing — 118. fundur,  6. maí 2010.

launastefna ríkisstjórnarinnar.

[10:48]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég kannast ekki við að verið sé að stofna dótturfélög í Landsbankanum, eins og hv. þingmaður heldur hér fram, til þess að fara í kringum lögin um kjararáð, vegna þess að bankastjórinn í Landsbankanum á að lúta því líka sem kjararáð ákveður í þessum efnum. Það er því auðvitað alvarlegt ef verið er að fara í kringum lögin til þess að komast hjá því að farið sé að niðurstöðum kjararáðs. Ég kannast ekki við það sem hv. þingmaður er að spyrja um og mér finnst hafa dregist von úr viti að ráða bankastjóra við Landsbankann. Mér skilst að það verði gert núna á næstu dögum og þá hljóta launin sem hann fær að verða þau sem kjararáð ákveður.

Svo vil ég vísa því á bug sem hv. þingmaður segir hér og aðrir hafa verið að segja, sumir hafa verið með dylgjur um að ég hafi gefið einhver fyrirheit um laun til seðlabankastjóra. Það er ekki á mínu færi (Gripið fram í.) og ég vissi ekkert um að hann mundi fá einhver önnur laun en kjararáð ákvað í þessu efni. Ég hef haft samband við starfsfólk mitt í ráðuneytinu og það kannast enginn við að hafa gefið slíkt loforð. (Gripið fram í.)