skerðing lífeyrisréttinda og staða opinberu lífeyrissjóðanna.
Frú forseti. Ég fagna þessari umræðu um stöðu lífeyrissjóða og ætla að taka aðeins annan vinkil á þá því að við búum við þann nöturlega veruleika að lífeyrissjóðssparnaður almennings varð eitt af mörgum viðfangsefnum eða öllu heldur leikföngum íslenska efnahagsundursins svonefnda. Hið siðspillta fjármálakerfi gróf sig í gegnum allt samfélagið og afleiðingarnar finna íbúar Íslands á eigin skinni. Velferðarkerfinu blæðir og mun gera um ófyrirséðan tíma.
Siðrofið hefur að öllum líkindum ekki einskorðast við fjármálastofnanir eða stjórnkerfi. Það má alveg ætla að stjórnir félagasamtaka og lífeyrissjóða hafi tekið þátt í veislunni. Þannig gæti spilling og óráðsía hafa náð inn í ótrúlegustu starfsemi, allt frá litlum fagfélögum til stórra lífeyrissjóða.
Lífeyrissparnaður er ein mikilvægasta eign okkar. Það er sárt til þess að hugsa að þeir sem við treystum fyrir þeim hafi jafnvel ekki staðið undir ábyrgð sinni heldur valið að fara með sameign sem sína eigin. Auðvitað eru þeir til sem eru á móti því að nokkuð athugavert hafi verið við starfshætti sjóða og félaga. Því skora ég á þingheim allan að styðja alhliða rannsókn á málefnum lífeyrissjóðanna. Þar er enginn lífeyrissjóður undanskilinn og með slíkri rannsókn er um leið komið í veg fyrir að allir lífeyrissjóðir eða eintaka stjórnarmeðlimir séu úthrópaðir fyrir gjörðir sumra.