skerðing lífeyrisréttinda og staða opinberu lífeyrissjóðanna.
Frú forseti. Starfsemi lífeyrissjóða og hvernig við ætlum að byggja þá upp til framtíðar er eitt af þeim verkefnum sem er hvað brýnast að ráðast í núna. Mig langar að nálgast þessa umræðu út frá jafnréttishugtakinu, hvernig samfélag við ætlum að byggja upp til framtíðar. Ég hef verið talsmaður þess í gegnum árin að við jöfnum réttindi þjóðfélagsþegna gagnvart lífeyristöku. Þau réttindi eru ekki jöfn í dag og ég hefði haldið að núverandi ríkisstjórn yrði í forsvari fyrir það að breyta því að ákveðnir aðilar í samfélaginu hefðu ekki sérréttindi umfram aðra. Ég er tilbúinn til að koma að slíkri vinnu og hefði talið rétt að við á vettvangi þingsins færum af stað í að endurskoða lífeyrissjóðakerfið í heild sinni þannig að allir hefðu þar jöfn réttindi.
Við þurfum líka að huga að lýðræðinu innan þessara sjóða. Það þarf að auka afkomu almennra lífeyrisþega, þ.e. þeirra sem greiða í þessa sjóði. Það er í takt við þann tíðaranda sem ég skynja í samfélaginu og í raun og veru þá kröfu sem fólk gerir um afkomu sína af störfum sjóðanna. Lífeyrissjóðirnir þurfa að sjálfsögðu að endurmeta sig og sína starfsemi í kjölfar hrunsins. Við horfðum upp á það að lífeyrissjóðirnir tóku þátt í fjárfestingargleðinni þrátt fyrir augljós krosseignatengsl og að mörg hættumerki hefðu verið uppi í íslensku hagkerfi á sínum tíma. Lífeyrissjóðirnir þurfa ekkert síður en stjórnmálamenn, fjölmiðlar, háskólasamfélagið o.fl. að líta í eigin barm og við þurfum að takast á við það verkefni. Vonandi mun rannsóknarnefnd þingsins að einhverju leyti skoða afkomu lífeyrissjóðanna eftir hrun, hvort eitthvað megi bæta og hvort við getum lært okkar af því (Forseti hringir.) mikla og stóra hruni.