138. löggjafarþing — 118. fundur,  6. maí 2010.

skyldur erlendra fyrirtækja og starfskjör starfsmanna þeirra.

484. mál
[11:50]
Horfa

félags- og tryggingamálaráðherra (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra. Frumvarpinu er einkum ætlað að mæta gagnrýni sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur varðandi tilteknar greinar gildandi laga, auk þess sem lagt er til að bætt verði nýju ákvæði við lögin sem styrkja heimildir Vinnumálastofnunar til að beita þvingunarúrræðum gagnvart fyrirtækjum sem virða ekki ákvæði laganna. Markmið með setningu umræddra laga árið 2007 var að styrkja stoðir vinnumarkaðskerfisins að því er varðar erlend fyrirtæki sem senda starfsmenn sína tímabundið hingað til lands í tengslum við veitingu þjónustu á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og annarra alþjóðlegra starfssamninga.

Eins og þingheim rekur minni til var árið 2007 mjög mikið um að erlendir starfsmenn kæmu hingað á vegum erlendra fyrirtækja, svokallaðra starfsmannaleigna, og löggjöfinni var ætlað að tryggja að starfsmenn þessara fyrirtækja byggju við sama öryggi og aðrir starfsmenn á íslenskum vinnumarkaði, þar af lágmarkskjör í kjarasamningum. Frumvarp það er varð að lögum árið 2007 byggðist á vinnu starfshóps þáverandi félagsmálaráðherra sem í áttu sæti fulltrúar Alþýðusambandsins, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Bandalags háskólamanna, dóms- og kirkjumálaráðuneytis, fjármálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka atvinnulífsins. Samstaða var innan starfshópsins um þau efnisatriði er fram komu í frumvarpinu og Alþingi samþykkti það sem lög.

Megintilgangur laganna var að veita íslenskum stjórnvöldum betri yfirsýn yfir stöðuna á innlendum vinnumarkaði að því er varðar starfsemi erlendra þjónustufyrirtækja hér á landi sem og fjölda erlendra starfsmanna er starfa hjá slíkum fyrirtækjum. Enn fremur var markmiðið að unnt yrði að viðhalda því eftirliti sem tíðkast á íslenskum vinnumarkaði með því að ákvæði laga og kjarasamninga séu virt svo treysta megi stöðu starfsmanna sem sendir eru tímabundið hingað til lands á vegum erlendra fyrirtækja. Efni frumvarpsins þótti jafnframt vera til þess fallið að stuðla að því að útlendingar sem koma hingað tímabundið á vegum erlendra fyrirtækja dvelji hér og starfi með lögmætum hætti og að áreiðanlegar upplýsingar um að þessir útlendingar væru til.

Áhersla er lögð á það að frumvarpinu sem ég mæli fyrir er ekki ætlað að breyta þessum tilgangi laganna enda er ég sannfærður um að lögin frá 2007 gegni mikilvægu hlutverki við að stuðla að því að þær leikreglur sem gilda á innlendum vinnumarkaði séu virtar. Við viljum hins vegar freista þess að sníða frekar einfalda agnúa af lögunum og mæta með þeim hætti hluta af athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA en ekki þeim athugasemdum sem að okkar mati fela í sér hættu á því að lögin nái ekki með fullnægjandi hætti tilgangi sínum. Haldi Eftirlitsstofnunin fast við athugasemdir sínar að því leyti munum við mæta því af fullum krafti og leita eftir atvikum úrlausnar EFTA-dómstólsins um þá þætti mála.

Eftirlitsstofnun EFTA hefur farið yfir efni laganna frá 2007 og komist að þeirri niðurstöðu að tiltekin ákvæði þeirra brjóti hugsanlega í bága við það ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið er varðar frjáls þjónustuviðskipti sem og tilskipun Evrópuþingsins og -ráðsins um störf útsendra starfsmanna í tengslum við veitingu þjónustu. Í rökstuðningi sínum vísar stofnuninni m.a. til dómaframkvæmdar Evrópudómstólsins. Í rökstuddu áliti stofnunarinnar til íslenskra stjórnvalda kemur m.a. fram að lögin feli í sér kröfur sem jafna megi til þess að sækja þurfi um leyfi fyrir fram til að geta hafið starfsemi hér á landi og telur stofnunin það fela í sér hindrun á frjálsum þjónustuviðskiptum samkvæmt ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Stofnunin leiðir þessa niðurstöðu af eftirfarandi atriðum í lögunum sem er að finna í 8., 10. og 11. gr. þeirra.

1. Þjónustuaðili þarf að veita Vinnumálastofnun upplýsingar átta virkum dögum áður en þjónusta er veitt. Lögð er til sú breyting í frumvarpi því sem ég mæli nú fyrir að þessi skylda verði afnumin en upplýsingaskyldan til Vinnumálastofnunar verði eigi síðar en sama dag og starfsemi hefst hér á landi, þ.e. í stað þess að tilkynna þurfi Vinnumálastofnun og veita henni upplýsingar átta virkum dögum áður en þjónustan er veitt dugi að gera það á sama degi og starfsemi hér á landi hefst.

2. Vinnumálastofnun skal veita skriflega staðfestingu móttöku gagna sem þjónustuveitandanum er skylt að afhenda notendafyrirtæki áður en þjónustan er veitt. Hér er lögð til sú breyting að það verði gert eigi síðar en tveim virkum dögum eftir að starfsemi þess síðarnefnda hefst hér á landi.

3. Láti fyrirtæki hjá líða að tilkynna um fulltrúa sinn til Vinnumálastofnunar eða um skipti á fulltrúa er fyrirtækinu óheimilt að veita þjónustu hér á landi. Lögð er til sú breyting í því frumvarpi sem hér er mælt fyrir að fulltrúi fyrirtækisins geti verið einn af starfsmönnum þess sem starfa tímabundið hér á landi.

Eins og ég sagði áðan er þessu frumvarpi aðallega ætlað að mæta þeirri gagnrýni sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur viðhaft að þessu leyti en án þess þó að breyta því markmiði sem lögunum er ætlað að ná. Gert er ráð fyrir að þær breytingar sem lagðar eru til á ákvæðum laganna komi ekki til með að hafa mikil áhrif á þá stjórnsýslu sem viðhöfð hefur verið við framkvæmd laganna, enda Vinnumálastofnun ávallt ætlað að gæta meðalhófs í aðgerðum sínum á grundvelli þeirra. Eftirlitsstofnunin hefur enn fremur gert athugasemdir við þau ákvæði laganna er varða rétt til launa í veikinda- og slysatilvikum og slysatryggingar vegna andláts, varanlegs líkamstjóns og tímabundins missis starfsorku sem er að finna í 5. og 7. gr. laganna. Að mati Eftirlitsstofnunar EFTA fela þessi ákvæði mögulega í sér hindrun á frjálsum þjónustuviðskiptum og brjóta því hugsanlega einnig ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið að því er varðar frjáls þjónustuviðskipti þar sem efni þeirra sé ekki hluti af þeim starfsskilyrðum sem tilskipunin um störf útsendra starfsmanna í tengslum við veitingu þjónustu gerir ráð fyrir. Að mínu viti fela hins vegar þessi ákvæði laganna í sér kjarasamningsbundin réttindi á íslenskum vinnumarkaði sem eru hluti af lágmarkskjörum launafólks. Þau hafa því að geyma mikilvæga vernd launafólks sem starfar hér á landi. Í því skyni að tryggja að erlent starfsfólk njóti þeirra lágmarksréttinda og lágmarkskjara sem gilda á íslenskum vinnumarkaði til jafns við aðra sem hér starfa er það grundvallaratriði að ákvæði þessi verði áfram í lögunum.

Ég legg líka áherslu á að efni þeirra gildir með fyrirvara um betri rétt starfsmanna samkvæmt ráðningarsamningi við hlutaðeigandi fyrirtæki, kjarasamningi eða löggjöf í því ríki sem þeir starfa í að jafnaði. Ég geri því ekki tillögu um breytingar að því er varðar þessi tvö ákvæði laganna þrátt fyrir athugasemdir Eftirlitsstofnunar EFTA að því leyti. Við teljum einfaldlega það sterk efnisrök fyrir þessum ákvæðum að við viljum láta reyna á þau rök til fullnustu.

Auk þess að mæta athugasemdum Eftirlitsstofnunarinnar er í frumvarpinu lagt til að bætt verði nýju ákvæði við lögin þar sem mikilvægt þykir að styrkja heimild til Vinnumálastofnunar til að beita þvingunarúrræðum gagnvart fyrirtækjum sem virða ekki ákvæði laganna. Verður að telja það eitt af lykilatriðum þess að stjórnvöld hafi fullnægjandi yfirsýn yfir innlendan vinnumarkað að erlend þjónustufyrirtæki sem veita hér á landi tímabundna þjónustu virði ákvæði laganna. Mælt er því fyrir um að koma á dagsektum sem geta numið allt að 100.000 kr. á dag.

Virðulegi forseti. Eins og ég hef rakið er þessu frumvarpi ekki ætlað að breyta tilgangi laganna frá árinu 2007 heldur sníða af þeim agnúa í þeim tilvikum þar sem við teljum að athugasemdir Eftirlitsstofnunar EFTA breyti ekki þeim grundvallarforsendum sem lagðar voru af hálfu Alþingis í upphafi máls þar sem þær athugasemdir draga ekki úr virkni laganna til að ná þeim markmiðum sem löggjafinn stefndi að í upphafi. Við teljum það grundvallaratriði að önnur atriði sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur gert athugasemd við og eru mikilvægur hluti af lágmarkskjörum launafólks og starfsskilyrðum verði áfram í lögunum til að tryggja að erlent starfsfólk njóti sömu lágmarksréttinda og -kjara og aðilar á íslenskum vinnumarkaði. Okkur hefur tekist alveg einstaklega vel að takast á við það erfiða verkefni sem innkoma starfsmannaleignanna var á íslenskan vinnumarkað. Það er mjög mikilvægt að við höldum samfélagslegri samstöðu um að verja þann árangur og að standa vörð um þau grundvallareinkenni íslensks vinnumarkaðar að hann sé jafnt sveigjanlegur og tryggi öflug grundvallarréttindi og verji lágmarkskjör fólks á fullnægjandi hátt.

Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til félags- og tryggingamálanefndar.